mánudagur, 1. september 2008

Staðið í ströngu


Iðunn litla Helgadóttir er loksins komin heim til Barnard Castle eftir Íslandsdvöl með hringferð og fyrirlestraferð um Þýskaland. Margt hefur gerst á þessum tíma sem tekið verður saman i næsta pósti, en nýjustu fréttir eru þær að Iðunn hóf septembermánuð með upprisu - þ.e að reisa sig upp við rúmkantinn til að teygja sig í geisladisk ofan á kommóðunni sem henni leist vel á. Mér sýnist þessi dama ekki ætla að bíða með göngu til 18 mánaða aldurs.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Helgi minn, lækka rúmbotninn í hvínandi hvelli, fröken Iðunn gæti flogið framúr í næstu upprisu!
kv.Eygló

Una, Helgi og Iðunn sagði...

Það er einmitt næsta mál á dagskrá.