mánudagur, 17. nóvember 2008

Den der venter på noget godt, venter aldrig for længe


Fyrir um það bil tveimur mánuðum pöntuðum við burðarpoka fyrir Iðunni, svo við gætum nú komist í góða haustgöngutúra um sveitina. Ekki fór nú betur en svo að pokinn var uppseldur, og 6 vikum seinna var pöntunin endurgreidd þar sem ekkert gekk að fá vöruna frá framleiðanda. Við gáfumst samt ekki upp, og pöntuðum sama poka annars staðar frá, og loksins, loksins er hann kominn. Þetta er engin slorgræja - þægileg fyrir burðarkláfa jafnt sem reiðmanninn, og fínustu þýsku gæði á þessu öllu saman. Við Iðunn skruppum aðeins út að prófa pokann góða eftir vinnu, en hann reyndist þá næstum því of þægilegur, því ég var varla komin lengra en út á horn þá var daman sofnuð á baki, svo gangan varð ekki löng í þetta sinn. Til stendur að prófa græjuna frekar um helgina.

sunnudagur, 16. nóvember 2008

Sælar dömur - vansæll Helgi


Í dag var yndislegt haustveður svo við tókum nokkrar myndir af vestinu hennar mömmu til að amma geti skellt þeim á handavinnusíðuna sína. Svo fórum við á enn einn rólóinn og róluðum hátt hátt upp í loft - megastuð!! Við Iðunn skruppum til Donnu í smá heimsókn á meðan pabbinn fór heim að leggja sig, því hann er nú kominn með 12 tíma magapestina sem við Iðunn fengum í síðustu viku - vonandi fer þessari veikindaþrautagöngu brátt að ljúka, við erum orðin ansi leið á henni!
Iðunn er voðalega ánægð með skóna sína og er alltaf að dást að þeim. Henni finnst samt ennþá svoldið erfitt að standa upp í þeim, líklegast vegna þess að þeir eru ansi mikið of stórir, en það hlýtur að venjast. Þegar hún er einu sinni staðin á fætur gengur henni þó voða vel að standa og ganga með hlutum, nema þegar hún gleymir sér við að dást að fótunum á sjálfri sér!
Rólegheitahelgi næstum búin og nú tekur við mikil verkefnavika - tæma þarf herbergi og flytja húsgögn fyrir gólflögnina í vikulokin.
Toodiloo!

laugardagur, 15. nóvember 2008

Nú er Iðunn á nýju skónum.......


Merkisdagur í dag. Iðunn fékk sína fyrstu skó! Okkur reyndist reyndar erfitt að finna skó sem uppfylltu kröfur foreldranna - sem sagt mjúkir, fallegir í sniðinu, vel saumaðir, og fótlaga (ekkert mál enda barnaskóbúðir mjög góðar í UK), ekki of strákalegir og ALLS EKKI bleikir. Það var síðasta atriðið sem reyndist okkur erfiðast. Hér er bókstaflega ekkert til á stelpur, hvorki skófatnaður né annar klæðnaður, sem ekki er bleikt. Eins er mjög erfitt að finna skó á dömur sem nota nr 17. En þetta hafðist allt að lokum, þó við höfum endað með þá aðeins við vöxt (nr 18). Þessi kaup boða upphaf ævilangra fjárútláta ef hún sver sig í móðurættina (eða amk ömmu Gee). Daman er voða ánægð með skóna, og vingsaði fótunum hátt hátt upp í loft í kerruferðinni milli búða eftir að skórnir voru komnir á fæturna - augljóslega miklu meira stuð að sveifla fótunum með svona fína skó, og eins varð alltaf að virða fyrir sér herlegheitin í hverri sveiflu.

föstudagur, 14. nóvember 2008

Föstudagsromsa


Ég er að hugsa um að hætta að segja af okkur heilsufarsfréttir því þær eru svo niðurdrepandi...skulum bara láta okkur nægja að segja að ég varð að vera heima í dag vegna þess að ég var of lasin til að fara til vinnu, og þarf nú ansi mikið til til að ég játi mig sigraða.
Iðunn pæja er aftur á móti eitilhress. Starfsfólkið á leikskólanum var að segja okkur hvað hún er alltaf góð og meðfærileg, og segja að þó hún sé svona lítil ennþá er hún eitt af best aðlöguðu börnunum á skólanum öllum. Reyndar er gott að vera svona medfærileg, því að launum fær Iðunn oft að fara með í útréttingar, t.d. með stóru krökkunum á bókasafnið, eða sækja skólakrakkana í eftirskólaklúbbinn og annað sem henni þykir skemmtilegt. Hún fær líka mikla athygli frá starfsfólki og krökkum sem finnst gaman að vera með henni. Annar vinsæll fjölskyldumeðlimur er Helgi, sem fær mikið hrós fyrir vinnuna sína í Hull, enda er að renna upp fyrir þeim það sem amma Fanney hefur alltaf haldið fram, að hann er mikill snillingur!
Nú standa til stórframkvæmdir í næstu viku - Philip smiður ætlar að koma og leggja gólfin í stofu og borðstofu á fimmtudag og föstudag, og til að það sé hægt verður að færa öll húsgögnin, og mörg þúsund bækur. En kannski verður það til þess að maður losi sig við eitthvað óþarfa dót. Allt verður svo að vera tilbúið eftir hádegi á laugardag því þá koma Maggi vinur hans Helga og Kristina konan hans í helgarheimsókn frá Glasgow - það verður gaman að hitta þau aftur!

miðvikudagur, 12. nóvember 2008

Hulda Sóley þriggja ára!!!!!!


Í dag á Hulda Sóley frænka Iðunnar og nýorðin stóra systir þriggja ára afmæli. Hulda er dugleg að hugsa um lítil börn (þó þau hagi sér ekki kannski alltaf eins og hún vildi helst!), og óskum við henni því til hamingju bæði með daginn og litla bróður. Við vitum að hún á eftir að spjara sig vel sem stóra systir og fyrirmynd....ef hann bara getur vanist á að vilja bæði teppi og kodda ;-) Til hamingju með afmælið, elsku Hulda Sóley!

þriðjudagur, 11. nóvember 2008


Helgi endurheimti loks 5. útliminn í dag. Eftir að hafa verið tölvulaus síðan hann fór frá Marel, leyfði fjárhagurinn loks kaup á vinnutölvu fyrir heimilisföðurinn, og hann er heill á ný. Gripurinn heitir HP6930p og er alls ekkert ómyndarlegur. Hér hafa farið fram forritainnsetningar og aðrir gjörningar í allan dag, og nú er sælubros að færast yfir andlit Helga eftir því sem hann finnur sig betur og betur í veröldinni, sem er öll önnur og betri eftir tölvukaupin.

Iðunn átti líka góðan dag á leikskólanum. Eftir veikindi síðustu viku sagði Hayley mér að Iðunn hefði verið algjörlega fullkomin í dag (just perfect!). Fannst mér sætast hvernig hún hefur víst verið að ferja leikföng í litla dömu sem einungis er 5 mánaða og getur enn ekki setið eða náð í sitt eigið dót - alltaf þegar hún var aðgerðarlaus kom Iðunn og rétti henni eitthvað nýtt til að leika við. Æ, þetta er yndisleg stúlka sem við eigum og við erum svo stolt af henni!

mánudagur, 10. nóvember 2008

Iðunn stóra frænka!


Í heila ellefu mánuði hefur Iðunn verið minnsta barnið í fjölskyldunni, og okkur finnst hún ennþá svoldið peð, þó hún sér náttúrulega ansi kná og dugleg stelpa. Hins vegar hefur henni nú verið steypt af stallinum því í dag fæddist lítill drengur Kristbjarnarson, frændi Iðunnar, og Iðunn því ekki lengur minnsta barnið, heldur stóra frænkan! Við óskum Bjössa, Gunnu og Huldu Sóleyju til hamingju með strákinn sinn og hlökkum mikið til að sjá hann um jólin.
Ömmurnar voru víst orðnar leiðar á rólumyndum og því höfum við breytt um leiktæki á Iðunnarmynd dagsins, sem sýnir heimasætuna í einhvers konar nethring. Við fórum á stúfana í dag og leituðum uppi nýjan róló sem við höfum aldrei komið á, og eru nokkrar myndir þaðan á myndasíðunni líka. Annars var hráslagalegt, hvasst og nístandi kalt í dag svo við vorum ekkert sérstaklega lengi úti. Það er eins gott að búið er að kaupa vetrarflíkur á barnið!

sunnudagur, 9. nóvember 2008

Enn meiri afslöppun


Í dag hefur verið suddarigning í eiginlega allan dag, kuldi, vindur og hráslagalegt veður. Því var aldrei þessu vant ekki farið á einn einasta róló. Hins vegar borðuðum við matarmikla kjötsúpuafganga í hádeginu, kíktum svo við hjá Donnu og drukkum kaffi með henni, og svo bökuðum við eplaköku (með eplum úr garði Donnu) þegar heim var komið og borðuðum hana volga eftir hádegi. Nú sitjum við hér við kertaljós, með kökuilm í húsinu, gölluð í lopapeysur og lopavesti og njótum haustsins. Það getur bara verið ansi kósí að taka haustið með trompi af og til.

laugardagur, 8. nóvember 2008

Rólegheit


Það er yndislegt að geta átt rólegann dag. Kósíheit í náttfötum fram undir hádegi, rölt svo út í gönguferð um safngarðinn við Bowes Museum, kaffisopi á Costa, (róló!,) og svo íslensk kjötsúpa í kvöldmatinn. Iðunn sofnuð sæl og glöð, foreldrarnir afslappaðir með smá rauðvín, og efni til í eplaköku á morgun. Unaðslegt líf!

Stuð!


Svona er gaman að skoða sjálfa sig á skjánum! Iðunn og mamma í vefmyndavélinni.