
Helgi endurheimti loks 5. útliminn í dag. Eftir að hafa verið tölvulaus síðan hann fór frá Marel, leyfði fjárhagurinn loks kaup á vinnutölvu fyrir heimilisföðurinn, og hann er heill á ný. Gripurinn heitir HP6930p og er alls ekkert ómyndarlegur. Hér hafa farið fram forritainnsetningar og aðrir gjörningar í allan dag, og nú er sælubros að færast yfir andlit Helga eftir því sem hann finnur sig betur og betur í veröldinni, sem er öll önnur og betri eftir tölvukaupin.
Iðunn átti líka góðan dag á leikskólanum. Eftir veikindi síðustu viku sagði Hayley mér að Iðunn hefði verið algjörlega fullkomin í dag (just perfect!). Fannst mér sætast hvernig hún hefur víst verið að ferja leikföng í litla dömu sem einungis er 5 mánaða og getur enn ekki setið eða náð í sitt eigið dót - alltaf þegar hún var aðgerðarlaus kom Iðunn og rétti henni eitthvað nýtt til að leika við. Æ, þetta er yndisleg stúlka sem við eigum og við erum svo stolt af henni!
3 ummæli:
5. útliminn? Jæja.
Við ömmurnar erum líka ansi montnar af Iðunni. Hefur nokkur tekið eftir því?
FK amma x 3
Já, það er nú gott að drengurinn sé búinn að taka tölvugleði sína á ný og aldrei of snemmt að byrja að kenna dótturinni að forrita.
Ég get ekki ímyndað mér að það hafi farið fram hjá neinum að Iðunn á afskaplega stoltar ömmur, sem fylgjast spenntar með afrekum hennar frá degi til dags á Iðunnarblogginu fína þökk sé mömmunni hennar.
BE amma x 5!
Aeji hvad hun er saet, hun hefur thetta allt fra storu fraenku sinni audvitad!
-Dilja
Skrifa ummæli