
Í dag hefur verið suddarigning í eiginlega allan dag, kuldi, vindur og hráslagalegt veður. Því var aldrei þessu vant ekki farið á einn einasta róló. Hins vegar borðuðum við matarmikla kjötsúpuafganga í hádeginu, kíktum svo við hjá Donnu og drukkum kaffi með henni, og svo bökuðum við eplaköku (með eplum úr garði Donnu) þegar heim var komið og borðuðum hana volga eftir hádegi. Nú sitjum við hér við kertaljós, með kökuilm í húsinu, gölluð í lopapeysur og lopavesti og njótum haustsins. Það getur bara verið ansi kósí að taka haustið með trompi af og til.
1 ummæli:
Þetta hljómar ósköp notalega. Vildi ég væri komin til ykkar. Hér er bjart og fallegt, en hífandi rok og skítkalt.Best að kúra bara inni. Fallegar myndir af litlu stúlkunni í fína vestinu sínu.
Stórt knús og margir kossar frá ömmu G.
Skrifa ummæli