sunnudagur, 16. nóvember 2008

Sælar dömur - vansæll Helgi


Í dag var yndislegt haustveður svo við tókum nokkrar myndir af vestinu hennar mömmu til að amma geti skellt þeim á handavinnusíðuna sína. Svo fórum við á enn einn rólóinn og róluðum hátt hátt upp í loft - megastuð!! Við Iðunn skruppum til Donnu í smá heimsókn á meðan pabbinn fór heim að leggja sig, því hann er nú kominn með 12 tíma magapestina sem við Iðunn fengum í síðustu viku - vonandi fer þessari veikindaþrautagöngu brátt að ljúka, við erum orðin ansi leið á henni!
Iðunn er voðalega ánægð með skóna sína og er alltaf að dást að þeim. Henni finnst samt ennþá svoldið erfitt að standa upp í þeim, líklegast vegna þess að þeir eru ansi mikið of stórir, en það hlýtur að venjast. Þegar hún er einu sinni staðin á fætur gengur henni þó voða vel að standa og ganga með hlutum, nema þegar hún gleymir sér við að dást að fótunum á sjálfri sér!
Rólegheitahelgi næstum búin og nú tekur við mikil verkefnavika - tæma þarf herbergi og flytja húsgögn fyrir gólflögnina í vikulokin.
Toodiloo!

6 ummæli:

Sonja sagði...

Glæsilegt lopavesti. Ég er búin að vera að sjá svo flott lopavesti að undanförnu á netinu. Ég verð að athuga þetta þegar ég verð á landinu um jólin. Hvar er þessi handavinnusíða?

Una sagði...

Hér má finna uppskriftir af lopavestum: http://istex.is/default.asp?sid_id=19413&tre_rod=002|004|&tId=1

Annars er náttúrulega ómögulegt að hafa ekki link hér á handavinnusíðuna, set hann inn hið snarasta - við erum svo montin af ömmu Fanneyju.

Sonja sagði...

Takk takk :)

Nafnlaus sagði...

Þið eruð stórglæsilegar mæðgur og gætuð hæglega fengið störf í tískumódel bransanum.
Það er líka svo gaman að prjóna á ykkur því þið eruð svo ánægðar með afurðirnar og klæðið þær svo vel.
Bláa hurðin er líka alveg í stíl.
montna amman

Nafnlaus sagði...

Una í gallabuxum !!!!!!!!!!!!!!

eða bara buxum yfirleitt, ég þarf smá tíma til að melta þessa sjón

ks

Una sagði...

Ég er svo rosalega ánægð með þessar buxur - fyrstu buxur sem passa á mig í 10 ár - H og M er frábær verslun!