föstudagur, 14. nóvember 2008

Föstudagsromsa


Ég er að hugsa um að hætta að segja af okkur heilsufarsfréttir því þær eru svo niðurdrepandi...skulum bara láta okkur nægja að segja að ég varð að vera heima í dag vegna þess að ég var of lasin til að fara til vinnu, og þarf nú ansi mikið til til að ég játi mig sigraða.
Iðunn pæja er aftur á móti eitilhress. Starfsfólkið á leikskólanum var að segja okkur hvað hún er alltaf góð og meðfærileg, og segja að þó hún sé svona lítil ennþá er hún eitt af best aðlöguðu börnunum á skólanum öllum. Reyndar er gott að vera svona medfærileg, því að launum fær Iðunn oft að fara með í útréttingar, t.d. með stóru krökkunum á bókasafnið, eða sækja skólakrakkana í eftirskólaklúbbinn og annað sem henni þykir skemmtilegt. Hún fær líka mikla athygli frá starfsfólki og krökkum sem finnst gaman að vera með henni. Annar vinsæll fjölskyldumeðlimur er Helgi, sem fær mikið hrós fyrir vinnuna sína í Hull, enda er að renna upp fyrir þeim það sem amma Fanney hefur alltaf haldið fram, að hann er mikill snillingur!
Nú standa til stórframkvæmdir í næstu viku - Philip smiður ætlar að koma og leggja gólfin í stofu og borðstofu á fimmtudag og föstudag, og til að það sé hægt verður að færa öll húsgögnin, og mörg þúsund bækur. En kannski verður það til þess að maður losi sig við eitthvað óþarfa dót. Allt verður svo að vera tilbúið eftir hádegi á laugardag því þá koma Maggi vinur hans Helga og Kristina konan hans í helgarheimsókn frá Glasgow - það verður gaman að hitta þau aftur!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já þetta kemur mér aldeilis ekki á óvart. Helgi var kannski ekki sá allra meðfærilegasti á Iðunnar aldri. En það er örugglega bara merki þess að maðurinn er snillingur.
Heppna (m)amman

Nafnlaus sagði...

Þú ert ekki að segja grobbnu ömmunum neinar fréttir. Auðvitað er Iðunn afbragð annarra barna í sínum aldursflokki og veslings ensku grislingarnir eiga ekki sjens. Tengdasynir mínir eru náttúrulega snillingar báðir sem einn svo ekki sé minnst á strákinn minn, dæturnar fjórar, tengdadótturina og öll barnabörnin.Þetta er mitt ríkidæmi, skítt með kreppuna.
Grobbna amman í turninum.