mánudagur, 10. nóvember 2008

Iðunn stóra frænka!


Í heila ellefu mánuði hefur Iðunn verið minnsta barnið í fjölskyldunni, og okkur finnst hún ennþá svoldið peð, þó hún sér náttúrulega ansi kná og dugleg stelpa. Hins vegar hefur henni nú verið steypt af stallinum því í dag fæddist lítill drengur Kristbjarnarson, frændi Iðunnar, og Iðunn því ekki lengur minnsta barnið, heldur stóra frænkan! Við óskum Bjössa, Gunnu og Huldu Sóleyju til hamingju með strákinn sinn og hlökkum mikið til að sjá hann um jólin.
Ömmurnar voru víst orðnar leiðar á rólumyndum og því höfum við breytt um leiktæki á Iðunnarmynd dagsins, sem sýnir heimasætuna í einhvers konar nethring. Við fórum á stúfana í dag og leituðum uppi nýjan róló sem við höfum aldrei komið á, og eru nokkrar myndir þaðan á myndasíðunni líka. Annars var hráslagalegt, hvasst og nístandi kalt í dag svo við vorum ekkert sérstaklega lengi úti. Það er eins gott að búið er að kaupa vetrarflíkur á barnið!

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Til hamingju með litla frændann öll sömul. Alltaf jafn gaman þegar nýtt barn kemur í heiminn.Var að koma úr jólahlaðborði í MK. Svakalega fínn matur, enda stend ég á blístri. tórt knús frá ömmu bollu.