laugardagur, 15. nóvember 2008

Nú er Iðunn á nýju skónum.......


Merkisdagur í dag. Iðunn fékk sína fyrstu skó! Okkur reyndist reyndar erfitt að finna skó sem uppfylltu kröfur foreldranna - sem sagt mjúkir, fallegir í sniðinu, vel saumaðir, og fótlaga (ekkert mál enda barnaskóbúðir mjög góðar í UK), ekki of strákalegir og ALLS EKKI bleikir. Það var síðasta atriðið sem reyndist okkur erfiðast. Hér er bókstaflega ekkert til á stelpur, hvorki skófatnaður né annar klæðnaður, sem ekki er bleikt. Eins er mjög erfitt að finna skó á dömur sem nota nr 17. En þetta hafðist allt að lokum, þó við höfum endað með þá aðeins við vöxt (nr 18). Þessi kaup boða upphaf ævilangra fjárútláta ef hún sver sig í móðurættina (eða amk ömmu Gee). Daman er voða ánægð með skóna, og vingsaði fótunum hátt hátt upp í loft í kerruferðinni milli búða eftir að skórnir voru komnir á fæturna - augljóslega miklu meira stuð að sveifla fótunum með svona fína skó, og eins varð alltaf að virða fyrir sér herlegheitin í hverri sveiflu.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Loksins fékk barnið skó. Til hamingju með nýju skóna, elsku Iðunn mín. Nú getur þú farið að hlaupa.
En bíðið bara kæru foreldrar þar til Iðunn kemst á bleika prinsessuskeiðið eins og Hulda frænka.
Bleika amma fk

Nafnlaus sagði...

Æ, hvað hún er mikið dýrindi á nýju skónum litla stelpan mín og grobbin í takt við tilefnið. Amman er búin að eyða deginum að mestu í tiltekt og þrif, sem ekki veitti af.Tók þó smá hlé til að fara á mótmælafund á Austurvelli og seinna í sund í myrkrinu.
Stórt ömmuknús frá hinni ömmunni.

Nafnlaus sagði...

fínir skór! og fín stelpa í fínu skónum!
ks

Nafnlaus sagði...

jii hvað maður er sætur! :0)

kv,
Hildur