
Enn er sumarveður, allir orðnir hressir og mikil tilhlökkun að komast heim til Íslands á morgun. Í dag tókum við daginn snemma og þrifum húsið hátt og lágt og þvoðum 3 þvottavélar til þess eins að geta slappað af í garðinum það sem eftir var dagsins. Mmmmmmmm sól og 24 stiga hiti - ekkert slor! Daníel kíkti í heimsókn til okkar á bílnum sem gengur ýmist undir nafninu Íþróttabíllinn eða (þegar Una talar um hann) hárgreiðslubíllinn. Nú er hann orðinn svo ráðsettur að til stendur að selja skrjóðinn svo Iðunn notaði tækifærið og þóttist vera blond beib í framsætinu...á kyrrstæðum bílnum, svona ef einhver undrast bílstólaleysi á myndunum.
Á morgun ætlar Daníel svo að skutla okkur til Darlington, þaðan tökum við lest til Glasgow þar sem til stendur að hitta McMagga sem var með Helga í verkfræðinni, og svo er flug heim um kvöldið. Hann Bjössi mágur minn er svo yndislegur og ætlar að sækja okkur á Keflavík, enda verðum við eflaust orðin lúin annað kvöld eftir heils dags ferðalag.








