föstudagur, 18. júlí 2008

Ófremdarástand


Heilbrigðisástand heimilisins er ekki nógu gott sem stendur. Iðunn náði sér í smá hósta í Vínarborg en síðan við komum heim hefur hann ágerst og er hún nú komin með slím í lungun, nefrennsli, hósta sem fær hana til að kúgast og almenna vanlíðan - enginn hiti sem heita má þó, svo doktorinn dóttir tveggja lækna heldur enn að óþarfi sé að fara með barnið til læknis og dæla hana fulla af lyfjum - hér er bara treyst á "guð", lukkuna og lækningamátt tímans. Við fullorðna fólkið höfum sloppið aðeins betur, með hálsbólgu, hósta og ógeð í lungunum. Þó Iðunn sé lang veikust á Helgi þó lang mest bágt, eins og oft vill vera...ég held að fyrirbærið heiti man-flu hér í UK. Iðunn er í raun bara furðu spræk, þrátt fyrir vanlíðan og svefnleysi. Við vonum að allar lumbrur hafi verið gerðar brottrækar héðan af bæ eftir viku þegar við höldum heim á leið - viljum ekki draga einhvern Vínarhósta heim í fríska loftið á Fróni!
Kær kveðja úr pestarbælinu....

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

það er sko bannað að koma með eitthvað heim!

Una sagði...

úff við stefnum sko á að vera laus við þennan fjanda fyrir heimferðina