sunnudagur, 13. júlí 2008

Rólegheit



Hér hefur lítið verið gert um helgina annað en sofa, hvíla sig, elda mat og borða hann. Við vorum öll svo lúin eftir keyrsluna í síðustu viku að við ákváðum að taka lífinu með ró, enda veðrið hálf leiðinlegt, þó sólin léti sjá sig seinni partinn í dag. Iðunn virðist ætla að detta inn í gömlu rútínuna sína án mikilla vandkvæða, en hefur samt sofið meira en venjulega og drukkið ansi mikið - eins og hún sé að vinna sig upp eftir hitann í síðustu viku. Vinna á morgun fyrir húsmóðurina og svo ekki nema tæpur hálfur mánuður þar til við förum heim til Íslands - jibbiii jeiiii!

11 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Iðunn er kúl, strax byrjuð að hafa áhrif í vísindaheiminum.

Nafnlaus sagði...

vinsamlegast skiljið rigninguna eftir í Durham.

Nafnlaus sagði...

aaaaaaaahhhhhh, augun mín, það brennur...aaaaahhhhh, neonmaður, neonmaður!

Una, Helgi og Iðunn sagði...

Meinarðu Neonderdalsmaður?

Nafnlaus sagði...

ég náði ekki þessari kaldhæðni...

Nafnlaus sagði...

held að þetta hafi átt að vera grín um húðlit Helga sem hefur ekki fengið neina sól í sumar, miðað við Jóhannes sem hefur verið í sumarfríi í hinum sólríka höfuðstað Íslands (og nágrannabyggðalögum)
En þá hljótum við að heimta mynd af Jóhannesi brúna, er það ekki?
katla
ps, ég tek samt ekki undir með Jóhannesi, ég þarf ekki sólgleraugu

Nafnlaus sagði...

held að þetta hafi átt að vera grín um húðlit Helga sem hefur ekki fengið neina sól í sumar, miðað við Jóhannes sem hefur verið í sumarfríi í hinum sólríka höfuðstað Íslands (og nágrannabyggðalögum)
En þá hljótum við að heimta mynd af Jóhannesi brúna, er það ekki?
katla
ps, ég tek samt ekki undir með Jóhannesi, ég þarf ekki sólgleraugu

Nafnlaus sagði...

Ég hitti Jóhannes í Kaupmannahöfn í síðustu viku og ég get staðfest að hann er ekki með lit á húð sem samræmist þeirri sól sem var á tímabilinu. Hann var gersamlega eins og næpa við hliðina á mér.

Nafnlaus sagði...

Ha ha ha áttu myndir Anna Lilja? Ég get fúslega sett þær upp hér!

Nafnlaus sagði...

Óskaplega eru allir eitthvað tötsí hérna nema sá sem aktjúallí varð fyrir gríninu. Má ekki lengur segja neonbrandara í friði eða hvað? Held það hljóti að vera einhvers konar meðvirkni vegna þess að svona albínóaskens gæti átt við um alla ofanritaða (og alla íslendinga nema Örvar kanski)... nema Önnu Lilju auðvitað, en það er ekki að marka því hún er alltaf eins og Homo Elgtanus. Cheer öpp peeps, hvítasti maðurinn á klakanum má nú stundum skjóta í kring um sig...

Nafnlaus sagði...

....ég hef nú samt áhuga á að sjá myndir af "brúnku" Jóa.....