
Þá erum við loksins komin heim eftir vel heppnaða ferð til Vínar. Yndislegt veður allan tímann - aðeins of heitt fyrir Iðunni reyndar svona alveg fyrst (um og yfir 30C), en við pössuðum hana vel og gáfum vel að drekka og seinni part vikunnar var svona 26-28 stiga hiti sem átti vel við okkur öll. Mikið var reiknað, eins mikið skrafað og næstum öll kvöld var farið út að borða með misstórum hópum gamalla vina og nýrra. Allir lærðu eitthvað nýtt og allir á ráðstefnunni voru sammála um að Iðunn væri langskemmtilegasta, flottasta og stilltasta stelpan á svæðinu - hún var reyndar eina stelpan á svæðinu undir 25 ára aldri! Ein vinkona mín í Vín hafði eignast strák síðan ég kom þangað síðast svo við Iðunn vorum með þeim einn eftirmiðdag til tilbreytingar og Iðunn var afar hrifin af Alexander, enda þykja henni allir krakkar æðislega skemmtilegir. Tristan, 4 ára strákur Valdísar (Guðmundsdóttur, doktorsnema í París) var líka voða vinsæll enda var hann afskaplega hrifinn af Iðunni og hafði gaman af að spila með hana og keyra hana í kerrunni. Svo fékk Sonja doktorsnemi í Vínarborg að nota mynd af Iðunni í doktorsverkefnið sitt, svo hún er strax orðin hluti af vísindaheiminum, ekki nema 7 mánaða gömul!
Við komum loksins heim í hús um klukkan 23.30 eftir ansi langt ferðalag (m.a. 5 tíma bið á Schiphol) og erum öll ansi lúin - Helgi og Iðunn eru bæði sofandi sem stendur.....ég hugsa að við notum helgina til gera sem minnst og ná okkur eftir ferðalagið!
2 ummæli:
um hvað er doktorsritgerðin? Það verður að vera eitthvað áhugavert og skemmtlegt svo Iðunn geti sagt þessa sögu í framtíðinni!
Hlutinn sem Iðunn er í er um hvernig andlit stelpna og stráka vaxa, sem er svona meðal kúl....en annar hluti ritgerðarinnar snýst um að sýna fram á að bílar séu annað hvort kvenlegir eða karlmannlegir og mismunandi aðlaðandi - mæla semsagt aðdráttarafl bíla út frá lögun þeirra sem er ansi kúl....
Skrifa ummæli