fimmtudagur, 24. júlí 2008

Afmælisdagur


Helgi átti góðann afmælisdag. Fyrst færðum við Iðunn honum kort og kaffi í rúmið og sungum fyrir hann afmælissönginn ansi rámum rómi eftir öll veikindin. Þar næst héldum við til Durham. Í Durham fékk Iðunn að hitta nýja deildarhundinn, sem heitir Poppy og er 8 vikna gamall míní pulsuhundur.....rosalega sæt, en Iðunni þótti perlufesti eigandans mun meira spennandi...líklega vegna þess að Poppy sat bara í makindum í fangi eiganda síns og Iðunn hélt hana líklega hluta af almennum líkamsfellingum hennar....
Við fengum okkur hádegispikknikk við rústir Finchale Priory, og svo héldum við snemma heim og eyddum nokkrum tímum í garðinum. Veðurguðirnir voru hliðhollir Helga og afmælisveðrið því sem pantað - 22C og sól og blíða. Um kvöldið fór Iðunn svo í sína fyrstu pössun síðan við fluttum aftur til Englands. Hún var í 3 tíma hjá Donnu í góðu yfirlæti. Við gátum samt varla annað en brosað að stelpunni okkar þegar hún var tilbúin í pössunina - sposk í náttfötum með Pippa upp á arminn og sængina með í för og brunaði þannig í gegnum bæinn í Silfurkrossinum góða alla leið til Donnu.
Við Helgi fórum sem sagt út að borða tvö ein í fyrsta sinn í 7 1/2 mánuð og nutum vel.....pöntuðum okkur rauðvín með matnum og töluðum saman um fullorðins málefni. Þegar við fórum svo að sækja barnið fundum við Donnu út á götuhorni með Iðunni í vagninum á leið í rökkurgöngu - hún hafði sofnað sæl en undrast foreldraleysið þegar hún hrökk upp aftur og Donna því á röltinu til að fá hana til að sofna aftur. En sem sagt allt gekk vel: barnið sælt, foreldrarnir glaðir og Helgi ánægður með daginn sinn. Við töltum svo heim í ljósaskiptunum með náttfataklædda stelpu í vagni, sumarklædd og hamingjusöm í 20C.

Engin ummæli: