
Í dag 23.júlí á Helgi Pétur pabbi Iðunnar 32 ára afmæli. Helgi er náttúrulega allra besti pabbinn, alltaf til í að skemmta stelpunni sinni og fer fyrstur með henni á fætur á hverjum einasta morgni, jafnvel þegar hún vaknar klukkan 06.00! Fáir hefðu nú trúað því fyrir nokkrum árum! Helgi er líka yndislegur eiginmaður og sálufélagi, sem elskar okkur báðar og er óhræddur við að sýna okkur það. Það er ótrúlegt að hugsa til þess að á einungis tveimur árum höfum við kynnst, gift okkur, eignast yndislega dóttur, og bætt líf okkar beggja á svo margvíslegan hátt að ekki er hægt að telja allt til. Ég þakka bara fyrir að hafa þegið boðið í sextugsafmæli Siggu "fairygoodmother"Sig., og hitt þar þennan prýðispilt - ég man enn hvað ég var hissa þegar ég komst að því að hann væri á lausu!
En sem sagt: Til hamingju með afmælið elsku Helgi okkar. Við erum svo heppnar að þú sért pabbinn, eiginmaðurinn og ofureplið á þessu heimili.
Una og Iðunn
xxx
5 ummæli:
Til hamingju með daginn elsku mágur! :)
Þú ert vonandi búin að drekka ótæpilega af bjór í tilefni dagsins? Ef ekki þá er ekki eftir neinu að bíða.
Stelpur, sýnið honum svo biðlund og skilning í allri drykkjunni.
Til hamingju með daginn elsku Helgi okkar :)
Kiss og knús
Fríða og strákarnir
takk takk,
drakk 3 bjóra
æj er ég degi of sein :(
Til hammó með ammó í gæró !
Skrifa ummæli