
Enn er sumarveður, allir orðnir hressir og mikil tilhlökkun að komast heim til Íslands á morgun. Í dag tókum við daginn snemma og þrifum húsið hátt og lágt og þvoðum 3 þvottavélar til þess eins að geta slappað af í garðinum það sem eftir var dagsins. Mmmmmmmm sól og 24 stiga hiti - ekkert slor! Daníel kíkti í heimsókn til okkar á bílnum sem gengur ýmist undir nafninu Íþróttabíllinn eða (þegar Una talar um hann) hárgreiðslubíllinn. Nú er hann orðinn svo ráðsettur að til stendur að selja skrjóðinn svo Iðunn notaði tækifærið og þóttist vera blond beib í framsætinu...á kyrrstæðum bílnum, svona ef einhver undrast bílstólaleysi á myndunum.
Á morgun ætlar Daníel svo að skutla okkur til Darlington, þaðan tökum við lest til Glasgow þar sem til stendur að hitta McMagga sem var með Helga í verkfræðinni, og svo er flug heim um kvöldið. Hann Bjössi mágur minn er svo yndislegur og ætlar að sækja okkur á Keflavík, enda verðum við eflaust orðin lúin annað kvöld eftir heils dags ferðalag.
5 ummæli:
sennilega of seint, en góða ferð!
Takk fyrir heimsóknina í dag - gaman að sjá ykkur og auðvitað mesta bjútíið í bænum :D
Er ekkert internet í 101?
ég ætlaði alltaf að bjóða þér bókina; hvað á barnið að borða eða eitthvað álíka. Ég hitti Æsu í dag og hún sagði mér að Iðunn væri mikil grænmetisáhugakona, Birgir Óli er þannig og nýttist mér bókin vel. Ef þú vilt þá máttu fá hana lánaða..
Hvad er thetta, thad eru eki allir a Islandi til ad fylgjast med gangi mala hja ykkur - frettir takk! Er hun byrjud ad segja Dilja? Byrjud ad ganga? Byrjud ad lesa? Byrjud ad drekka? (djok...)
Skrifa ummæli