sunnudagur, 20. júlí 2008

Gönguferð


Hér er ástandið enn ekki alveg orðið gott, Helga og Iðunni virðist hægt og sígandi vera að batna, en ég er enn heldur slöpp með hita og kraftlítil. Það var kannski ekki mjög sniðugt að fara í sveitagöngu í dag, en allir voru hitalausir í morgun (enginn hefur í raun fengið hita nema ég - heppna ég!), og Iðunn búin að vera eldhress í sjálfri sér allan tímann, og ég bara varð að komast út. Allir voru því dúðaðir í ensku sumarfötin (flíspeysur, húfur, treflar!) og haldið af stað. Fyrir valinu varð mjög auðveld gönguleið ofar í dalnum - hún fer eftir gömlum lestarteinum og er því rennislétt nánast alla leið. Samt varð ég allt of þreytt undir lokin og eftir keyrsluna heim varð ég að skríða undir sæng með hitaskjálfta og beinverki - ekki gaman. En ég er nú að vona að þessu fari að ljúka og ætla að fara snemma að sofa í kvöld. Ég verð samt að viðurkenna að það var yndislegt að komast út í frískt loft og ganga nokkra kílómetra, og náðum meira að segja að fá smá sól á andlitið á milli regnskúra og vindhviða!

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

ég endurtek fyrri athugasemd mína!

Nafnlaus sagði...

6 dagar til stefnu til að losa okkur við allan ófögnuð...og ná okkur í nýjan í vélinni!

Nafnlaus sagði...

Ég er farin að halda að hreyfiþörf þín sé að verða að veikleika! Það vona ég að þú verðir svo heppin að eiga aldrei "eyrna" barn. Þá mundirðu sennilega þurfa að fá þér hlaupabretti með þúfuhermi, hinglaga sjónvarp sem sýnir stanstlaust holt og hæðir, fuglasöng á disk og útilykt í spreyformi!

Nafnlaus sagði...

Úff já....ég lifi samt í voninni að þar sem hvorugt okkar hjóna var eyrnabarn sé einhver séns að við eignumst hið fágæta íslenska barn sem ekki þarf rör í eyrun sín. Enn sem komið er hefur ekki bólað á neinu slíku hjá Iðunni svo ég er vongóð með hana a.m.k.....
En já ég skal játa að hreyfiþörfin er ansi sjúkleg...ég minnist þess þegar við urðum næstum úti í brjálaða bylnum á jóladag með 2 vikna gamalt barn í vagni - þetta er náttúrulega geðveiki!

Nafnlaus sagði...

fyrsta skrefið er að viðurkenna vandann Una, þú ert á réttri leið!