föstudagur, 31. október 2008

Stelpurnar okkar!!!


Iðunn horfði agndofa á leikinn í gærkvöldi. Sterk í henni föðurgenin! Hún fékk nýtt snuð í tilefni dagsins, enda nauðsynlegt að eiga nóg af þeim þegar heilsan er ekki alveg í lagi. Áfram Ísland og stelpurnar okkar!

Ófremdarástand á Ísalandi


Eins og margir eflaust vita erum við Iðunn á Íslandi þessa dagana. Það er alltaf svo gott að vera heima - mér finnsteins og ég andi léttar á Íslandi en annars staðar í veröldinni - sama þó bölmóður og krepputal sé að íþyngja öllum öðrum Frónbúum. Iðunn hefur hins vegar ekki andað mikið léttar því hún náði sér í pestina hans pabba síns og hefur verið heimavið með hósta, hita, kurr í lungum og stíflað nef síðan á þriðjudag. Hún náði reyndar einni heimsókn til Ásdísar Maríu áður en hún lagðist, og fékk svo að vera einn veikindadag hjá ömmu Fanneyju og afa Gunna til að breyta um umhverfi. Veikindunum hafa fylgt langar andvökunætur sem eru öllum erfiðar. Ekki bætir úr að veðrið er búið að vera fagurt og tilvalið til vagnarölts, og bæði móðir og dóttir eru orðnar leiðar á inniveru. En við þessu er ekkert að gera og það er þó betra að vera lasin á Íslandi hjá ömmum sínum en í enska húskuldanum. Snúum aftur á sunnudagskvöld og hlökkum mikið til að hitta Helga aftur.

laugardagur, 25. október 2008

Heimferð á haustdögum


Á morgun, þann 26.október, förum við Iðunn heim að hitta vini og vandamenn. Það er skemmtileg tilviljun að þann sama dag fyrir ári, 26.október 2007, hélt ég heim til Íslands til að eiga stelpuna okkar. Þennan dag í fyrra hafði ég ekki stoppað lengur á Íslandi en 2 vikur samfellt í a.m.k. 10 ár, og nú erum við hægt og sígandi að stefna að heimferð. Í fyrra var það einstaklingur og eiginkona sem steig upp í vélina í Glasgow, en nú verður það móðir og eiginkona...einstaklingur reyndar líka, þó móðurhlutverkið sé ansi ráðandi þessa stundina. Ég minnist þess helst hvað við mamma vorum lúnar þegar við komumst loks í vélina, eftir 48 stunda nær samfelld þrif, í kulda og trekki, hitavatnslausar, og húsið fullt af iðnaðarmönnum. Og hvað við vorum fegnar að vera loksins lagðar af stað heim á leið. Síðan hefur margt á daga okkar allra drifið, og auður margra farið minnkandi, en ég fer að minnsta kosti héðan ansi mikið ríkari nú en þegar ég lagði af stað í heimferðina árið 2007.
Hittumst heima, Una og Iðunn.

föstudagur, 24. október 2008

Langþráðar Iðunnarfréttir


24.október. Fæðingardagur afa Karls.
Nú eru aðeins of margir blogglausir dagar liðnir, amk fyrir ömmurnar. Hins vegar getum við fært þeim góðar fréttir: við tókum loks skyndiákvörðun í kvöld og við Iðunn fljúgum heim núna á sunnudaginn og verðum í viku. Jibbíí jei! Við erum mjög spenntar að komast heim, og Helgi er spenntur að fá heila viku í piparsveinafíling við forritun og bjórdrykkju.
Í öðrum fréttum er það helst að við fengum smið heim á miðvikudag til að gera tilboð í parketlagningu, veggjasmíð og rennuuppsetningu, og fáum við kostnaðaráætlun frá honum á mánudag. Helgi er lasinn með hita og eymd og á ansi bágt en þau feðginin áttu ansi góðan dag saman samt. Annars gerist svo sem ekkert nema vinna vinna vinna og áframhaldandi hversdagsleiki - jú reyndar var húsmóðirin að frétta að hún á boð í fría ferð til Vanuatu í júní 2009.....hljómar spennandi.....
En sem sagt: hvíldardagur á morgun og Ísland á sunnudag. Vonumst til að hitta sem allra flesta á meðan við erum heima!

PS Ef einhver býr svo vel að eiga í geymslu gamla en nothæfa kerru eða hentugan bílstól sem við getum fengið að láni þessa viku eru öll boð vel þegin. Iðunn er enn bara rétt 9 kg og passar enn í ungbarnastóla.....smá en kná! Ferðakerran okkar er ágæt en ekki alveg nógu skjólgóð í vetrarhörkurnar sem Íslendingar hafa þurft að þola að undanförnu.

þriðjudagur, 21. október 2008

2*róló er gott mál


Í dag fékk Iðunn að fara tvisvar á sama rólóinn. Hún varð sem sagt að vera heima í dag vegna gubbupestarinnar, en var orðin ansi leið á heimilislífinu í Victoria Road. Svo pabbi og Iðunn fóru á róló....og þegar mamma kom heim fóru mamma og Iðunn á róló. Rosa stuð ef maður er 10 mánaða og með gullfiskaminni! Jibbí jei róla! Svo kíktum við Iðunn til Barböru vinkonu þar sem henni var tekið sem konungborinni prinsessu, svo það spillti ekki fyrir - ansi góður dagur hjá Iðunni.
Annars er bara tvennt í fréttum: Iðunni var orðið svo kalt að mamman keypti bráðabirgðaúlpu (lesist: rétt vídd, of langar ermar, ekki nógu vantsheld, ekki nógu rúm bla bla bla) fyrir peningana frá Roddy á nr. 5; og Iðunn sofnaði loks í sínu eigin rúmi í kvöld, í fyrsta sinn síðan við byrjuðum á flandrinu öllu í maí. Jeeeeiiiiiiii!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Vonandi stefnir á betri tíma því aðal fyrirvinnan getur ekki unnið 8-9 tíma á dag mikið lengur á 2-3 tíma svefni. Hún hefur samt vaknað á klukkutíma fresti síðan hún fór í háttinn svo ég er ekki viss hvort þetta reynist sannur sigur.

mánudagur, 20. október 2008

Lítill lasarus.


Iðunn nældi sér í einhverja uppgangspest á leikskólanum, og eftir hádegi í gær gerði hún sér lítið fyrir og ældi heljarinnar gusum yfir mömmu sína í sönnum Mr Creosot stíl - ekki bara einu sinni, heldur tvisvar. Jibbíjei, gaman að vera mamma! Alltaf gott að vera með ælu alveg inn að nærbuxum. Hún hélt niðri næturgjöfunum, en í morgun þegar þau Helgi fóru á fætur gusaði hún fyrir hann líka, en einhvern vegin tókst honum samt að koma sér undan árásinni og slapp við að blotna sjálfur. Síðan hefur sem betur fer ekkert annað komið upp úr henni svo við erum að vona að þetta sér nú búið, en hún verður að vera heima á morgun til að jafna sig áður en við sendum hana aftur á leikskólann (lesist leikskólinn vill ekki svona múkka til sín). Iðunn hefur samt verið söm við sig meðan á þessu stóð, hress og glöð og hvers manns hugljúfi, og algjörlega hitalaus, svo ástandið er mun verra fyrir foreldrana sem standa í þrifum og þvottum en stúlkuna sjálfa. Hún borðar og drekkur, og nær vonandi fullum bata á morgun.

Æsa litla


Hún Æsa litla systir mín á afmæli í dag!!!!!! Til hamingju til hamingju! Ég stal þessari sætu mynd af þeim hjónum í algjöru leyfisleysi, og skellti henni hingað inn, ég vona að það sé í lagi. Við vorum svo óheppin að komast ekki heim í bjartsýnisboðið sem haldið var um helgina í tilefni dagsins, svo Æsa besta systir, frænka og mágkona verður bara að eiga knús inni hjá okkur þar til við sjáumst næst, vonandi sem allra allra fyrst!

sunnudagur, 19. október 2008

Draugamyndavélin

Nýi vinnuveitandinn hans Helga vill endilega sjá hann á Skæpfundum, og því höfum við neyðst til að fjárfesta í vefmyndavél. Allt í einu gerir maður sér grein fyrir hvað maður er stúrinn á svipinn fyrir framan skjáinn. Og fyrir utan hve gaman er fyrir ömmur að sjá barnabarnið hoppa og skoppa um veraldarvefinn má líka nýta hana til að festa á "filmu" myndir af hversdagslífinu í Victoria Road. Deus in mascina virðist sýna okkur í raunsærra ljósi en myndirnar á Iðunnarsíðunni





Letilíf


Ekkert er betra en letilíf eftir langa vinnuviku. Í gær fórum við ekki úr náttfötunum fyrr en á hádegi, gerðum ekkert merkilegra en að kíkja á kaffihús í Barnard Castle, og bökuðum svo eplaköku og borðuðum fajitas í kvöldmatinn. Við Iðunn spjölluðum við ömmu Gee á skæpinu og sýndum henni hvað við erum sætar í gegnum nýju vefmyndavélina. Amma segir reyndar að þetta sé svoldið eins og að tala við drauga, því við eigum það til að gufa upp af skjánum af og til. Nú er komið fram að hádegi á sunnudegi, allir í náttfötum nema Iðunn, sem er einungis klædd af illri nauðsyn, því úrgangsframleiðsla var í meira lagi og bíaði út náttfötin (too much information, I know!), eplakökuafgangar í morgunmat (eplagrautur hjá Iðunni) og kaffi drukkið í rúminu. Ekki slæmt, eða eins og við Diljá og mamma eigum til að segja: Gaman núna!

PS Af Iðunni er það helst að frétta að hún er nú farin að standa einhent upp við hina ýmsustu hluti...augljóst að þetta barn mun ekki slá metið mitt sem síðasta barn til gangs í familíunni - mynd af því á myndasíðu...

föstudagur, 17. október 2008

Langþráð endurkoma tannálfsins


Rúmum einum og hálfum mánuði eftir að fyrsta tönnin kom í munninn á Iðunni er loks hægt að finna móta fyrir þeirri næstu. Eins og sést af myndinni hér að ofan er alveg nauðsynlegt að naga allt sem á vegi manns verður meðan svona stendur á.
Húrra fyrir tannálfinum!