
Ekkert er betra en letilíf eftir langa vinnuviku. Í gær fórum við ekki úr náttfötunum fyrr en á hádegi, gerðum ekkert merkilegra en að kíkja á kaffihús í Barnard Castle, og bökuðum svo eplaköku og borðuðum fajitas í kvöldmatinn. Við Iðunn spjölluðum við ömmu Gee á skæpinu og sýndum henni hvað við erum sætar í gegnum nýju vefmyndavélina. Amma segir reyndar að þetta sé svoldið eins og að tala við drauga, því við eigum það til að gufa upp af skjánum af og til. Nú er komið fram að hádegi á sunnudegi, allir í náttfötum nema Iðunn, sem er einungis klædd af illri nauðsyn, því úrgangsframleiðsla var í meira lagi og bíaði út náttfötin (too much information, I know!), eplakökuafgangar í morgunmat (eplagrautur hjá Iðunni) og kaffi drukkið í rúminu. Ekki slæmt, eða eins og við Diljá og mamma eigum til að segja: Gaman núna!
PS Af Iðunni er það helst að frétta að hún er nú farin að standa einhent upp við hina ýmsustu hluti...augljóst að þetta barn mun ekki slá metið mitt sem síðasta barn til gangs í familíunni - mynd af því á myndasíðu...
8 ummæli:
Já, það er augljóst að Iðunn mun fara langt fram úr móður sinni í motoriskum þroska. Pabbagenin sennilega að slá í gegn. Vitsmunaþroskinn er greinilega líka á góðum skriði, farin að liggja í bókum eins og hún á kyn til. Þessi amma er orðin mjög óþolinmóð að fá að sjá og knúsa litlu stelpuna. Frábært að sjá og heyra ykkur á Skypinu.Hér hjá okkur kisu er líka letilíf á sunnudagsmorgni,morgunmatur og kaffi í bólinu. Bara notalegt, en sakna ykkar.
Hæ hæ
Takk fyrir allar góðu kveðjurnar og straumana til Boston - gerir ekkert smá mikið fyrir okkur :D
Ég kíki oft á dag á litlu rúsínuna ykkar :D
Knús
Fríða
haha....þessi náttföt hans Helga eru auðvitað bara snilld! :)
Hinn fínasti Marimekkoserkur (heitir víst serkur en ekki náttkjóll þegar karlmenn eiga svona!). Finnish design. Ég á svona rauðan. Það var mikið grín gert að okkur í Svíþjóð í vor þegar við mættum í þessu í kvöldkósístund á sófanum með heimilisfólkinu í Hallongatan (nú fluttt á Solskensgatan, samt ekki út af þessu...held ég).
Pabbi þinn getur trútt um talað. Hann átti sjálfur svona serk og reyndar fleiri en einn á sínum yngri og grennri árum.
Hann pabbi var reyndar mjög hrifinn af þessu, það var Titti sem var ekki eins hrifin, enda hefur pabbi ekki enn fengið sér nýjan.
Hildur stal kommentinu mínu, þessi "serkur" er ekki alveg málið, Helgi er eins og fangi á myndinni og svo er Iðunn í sokkabuxum í stíl.
Þú ert bara öfundsjúkur.
Skrifa ummæli