mánudagur, 20. október 2008

Lítill lasarus.


Iðunn nældi sér í einhverja uppgangspest á leikskólanum, og eftir hádegi í gær gerði hún sér lítið fyrir og ældi heljarinnar gusum yfir mömmu sína í sönnum Mr Creosot stíl - ekki bara einu sinni, heldur tvisvar. Jibbíjei, gaman að vera mamma! Alltaf gott að vera með ælu alveg inn að nærbuxum. Hún hélt niðri næturgjöfunum, en í morgun þegar þau Helgi fóru á fætur gusaði hún fyrir hann líka, en einhvern vegin tókst honum samt að koma sér undan árásinni og slapp við að blotna sjálfur. Síðan hefur sem betur fer ekkert annað komið upp úr henni svo við erum að vona að þetta sér nú búið, en hún verður að vera heima á morgun til að jafna sig áður en við sendum hana aftur á leikskólann (lesist leikskólinn vill ekki svona múkka til sín). Iðunn hefur samt verið söm við sig meðan á þessu stóð, hress og glöð og hvers manns hugljúfi, og algjörlega hitalaus, svo ástandið er mun verra fyrir foreldrana sem standa í þrifum og þvottum en stúlkuna sjálfa. Hún borðar og drekkur, og nær vonandi fullum bata á morgun.

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Já, þetta tilheyrir. Þið hafið bara verið svo ótrúlega heppin hvað Iðunn hefur verið lítið pestsækin, þessi elska. Hún er samt ekkert mjög lasleg að sjá. Þessi græna slikja er sennilega endurkast frá peysunni frekar en merki um að henni sé bumbult.

Una sagði...

Nei hún var aldrei neitt lasleg, enda kom það mér algjörlega á óvart þegar gusan stóð allt í einu út úr barninu. En það er rétt hún er sjaldan lasin og hingað til aldrei neitt alvarlegt, ég held hún hafi bara einu sinni fengið hita, í svona ca. 3 tíma. 7-9-13

Nafnlaus sagði...

þegar þú þrífur æluna úr nærbuxunum, hugsaðu þá bara um litla frænda sem er búinn að vera með hita í viku, og þar á undan leið bara vika frá því síðasta eyrnabólga reið yfir,og þar áður voru það kannski 3 vikur ogsvoframvegis.
Og þá held ég bara að nærbuxnaþvottur verði bara skemmtilegur, er það ekki bara?
En ég vona nú að Iðunn litla nái þessu úr sér greyið!

Nafnlaus sagði...

oj, gubbupestar eru leiðinlegar. Láttu þér batna sem fyrst Iðunn.