Nýi vinnuveitandinn hans Helga vill endilega sjá hann á Skæpfundum, og því höfum við neyðst til að fjárfesta í vefmyndavél. Allt í einu gerir maður sér grein fyrir hvað maður er stúrinn á svipinn fyrir framan skjáinn. Og fyrir utan hve gaman er fyrir ömmur að sjá barnabarnið hoppa og skoppa um veraldarvefinn má líka nýta hana til að festa á "filmu" myndir af hversdagslífinu í Victoria Road. Deus in mascina virðist sýna okkur í raunsærra ljósi en myndirnar á Iðunnarsíðunni
3 ummæli:
Nafnlaus
sagði...
hihihi....mamman verður að passa svipinn yfir tölvunni núna!
3 ummæli:
hihihi....mamman verður að passa svipinn yfir tölvunni núna!
Mjög fyndið!
Kannski er þetta ekki draugamyndavél heldur bara sannleiksmyndavél.
Skrifa ummæli