mánudagur, 20. október 2008

Æsa litla


Hún Æsa litla systir mín á afmæli í dag!!!!!! Til hamingju til hamingju! Ég stal þessari sætu mynd af þeim hjónum í algjöru leyfisleysi, og skellti henni hingað inn, ég vona að það sé í lagi. Við vorum svo óheppin að komast ekki heim í bjartsýnisboðið sem haldið var um helgina í tilefni dagsins, svo Æsa besta systir, frænka og mágkona verður bara að eiga knús inni hjá okkur þar til við sjáumst næst, vonandi sem allra allra fyrst!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Takk, takk! Þessi mynd er afskaplega vinsæl sé ég, enda hefur vangasvipurinn sjaldan verið betri, að ég tali ekki um barminn! Og auðvitað Jóhannes með guylinerinn, sætur eins og alltaf.

Ég bíð spennt eftir knúsinu, sérstaklega frá Iðunni því barnaknús eru best af öllum og langt síðan ég hef fengið að knúsa þá stuttu.

Nafnlaus sagði...

Thessi mynd er mjog god, laetur mig reyndar sakna ykkar mjog mikid en thad er nu ekki langt eftir nuna, ekki einu sinni 2 manudir! koss og knus fra brisbane!

Nafnlaus sagði...

ótrúlega vinsæl mynd já enda myndefnið stórkostlegt! :)