laugardagur, 25. október 2008

Heimferð á haustdögum


Á morgun, þann 26.október, förum við Iðunn heim að hitta vini og vandamenn. Það er skemmtileg tilviljun að þann sama dag fyrir ári, 26.október 2007, hélt ég heim til Íslands til að eiga stelpuna okkar. Þennan dag í fyrra hafði ég ekki stoppað lengur á Íslandi en 2 vikur samfellt í a.m.k. 10 ár, og nú erum við hægt og sígandi að stefna að heimferð. Í fyrra var það einstaklingur og eiginkona sem steig upp í vélina í Glasgow, en nú verður það móðir og eiginkona...einstaklingur reyndar líka, þó móðurhlutverkið sé ansi ráðandi þessa stundina. Ég minnist þess helst hvað við mamma vorum lúnar þegar við komumst loks í vélina, eftir 48 stunda nær samfelld þrif, í kulda og trekki, hitavatnslausar, og húsið fullt af iðnaðarmönnum. Og hvað við vorum fegnar að vera loksins lagðar af stað heim á leið. Síðan hefur margt á daga okkar allra drifið, og auður margra farið minnkandi, en ég fer að minnsta kosti héðan ansi mikið ríkari nú en þegar ég lagði af stað í heimferðina árið 2007.
Hittumst heima, Una og Iðunn.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Búin að gera margar tilraunir til að senda athugasemd við Iðunnarbloggið til að lýsa gleði minni og tilhlökkun yfir því að þær mæðgur séu á leiðinni heim. Vona að það gangi núna. Mér er líka þessi dagur fyrir ári mjög minnisstæður. Ég hef sjaldan lent í meiri þrældómi, en ánægjan yfir að fá þær mæðgur heim yfirskyggði það allt.Við kisa erum farnar að telja niður klukkustundirnar til kvöldsins.
Káta amman í turninum.

Nafnlaus sagði...

jamm