föstudagur, 24. október 2008

Langþráðar Iðunnarfréttir


24.október. Fæðingardagur afa Karls.
Nú eru aðeins of margir blogglausir dagar liðnir, amk fyrir ömmurnar. Hins vegar getum við fært þeim góðar fréttir: við tókum loks skyndiákvörðun í kvöld og við Iðunn fljúgum heim núna á sunnudaginn og verðum í viku. Jibbíí jei! Við erum mjög spenntar að komast heim, og Helgi er spenntur að fá heila viku í piparsveinafíling við forritun og bjórdrykkju.
Í öðrum fréttum er það helst að við fengum smið heim á miðvikudag til að gera tilboð í parketlagningu, veggjasmíð og rennuuppsetningu, og fáum við kostnaðaráætlun frá honum á mánudag. Helgi er lasinn með hita og eymd og á ansi bágt en þau feðginin áttu ansi góðan dag saman samt. Annars gerist svo sem ekkert nema vinna vinna vinna og áframhaldandi hversdagsleiki - jú reyndar var húsmóðirin að frétta að hún á boð í fría ferð til Vanuatu í júní 2009.....hljómar spennandi.....
En sem sagt: hvíldardagur á morgun og Ísland á sunnudag. Vonumst til að hitta sem allra flesta á meðan við erum heima!

PS Ef einhver býr svo vel að eiga í geymslu gamla en nothæfa kerru eða hentugan bílstól sem við getum fengið að láni þessa viku eru öll boð vel þegin. Iðunn er enn bara rétt 9 kg og passar enn í ungbarnastóla.....smá en kná! Ferðakerran okkar er ágæt en ekki alveg nógu skjólgóð í vetrarhörkurnar sem Íslendingar hafa þurft að þola að undanförnu.

6 ummæli:

Una sagði...

Bara að prófa.....eftir kvörtun um að kommentin virki ekki

Nafnlaus sagði...

ok virka ef maður skráir sig inn i gegnum google, virkar ekki ef maður reynir að skrá nafn...en nú prófa ég anonymous

Nafnlaus sagði...

anonymous virkar greinilega - ekki alveg viss hvað veldur hinu

amma fk sagði...

Loksins, loksins kemur Iðunn. Amman ætlar að fara út á flugvöll og sækja hana. Nú verður aldeilis í koti kátt. Vonandi fáið þið bílstól.

amma fk sagði...

"í amstri dagsins" ??
þetta átti að vera amma fk

amma fk sagði...

Vanuatu jæja.Er þetta ekki eyja í Kyrrahafinu? Hafið þið sambönd þar? Þið hittið örugglega marga Íslendinga þar í sól og allsgnægtum. Amma súra