þriðjudagur, 21. október 2008

2*róló er gott mál


Í dag fékk Iðunn að fara tvisvar á sama rólóinn. Hún varð sem sagt að vera heima í dag vegna gubbupestarinnar, en var orðin ansi leið á heimilislífinu í Victoria Road. Svo pabbi og Iðunn fóru á róló....og þegar mamma kom heim fóru mamma og Iðunn á róló. Rosa stuð ef maður er 10 mánaða og með gullfiskaminni! Jibbí jei róla! Svo kíktum við Iðunn til Barböru vinkonu þar sem henni var tekið sem konungborinni prinsessu, svo það spillti ekki fyrir - ansi góður dagur hjá Iðunni.
Annars er bara tvennt í fréttum: Iðunni var orðið svo kalt að mamman keypti bráðabirgðaúlpu (lesist: rétt vídd, of langar ermar, ekki nógu vantsheld, ekki nógu rúm bla bla bla) fyrir peningana frá Roddy á nr. 5; og Iðunn sofnaði loks í sínu eigin rúmi í kvöld, í fyrsta sinn síðan við byrjuðum á flandrinu öllu í maí. Jeeeeiiiiiiii!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Vonandi stefnir á betri tíma því aðal fyrirvinnan getur ekki unnið 8-9 tíma á dag mikið lengur á 2-3 tíma svefni. Hún hefur samt vaknað á klukkutíma fresti síðan hún fór í háttinn svo ég er ekki viss hvort þetta reynist sannur sigur.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sigurinn vinnst sennilega ekki á einum degi, en þolinmæði...
Þyrfti barnið ekki líka að fara að eignast skó á litlu fæturna sína? Drífa sig heim að kaupa skó á góðum kjörum á Íslandi.

Nafnlaus sagði...

Mér sýnist það orðið brýnt fyrir ykkur að koma til Íslands. Bæði til að hitta ömmurnar og að birgja sig upp af ódýrum fatnaði. Nú er allt orðið svo ódýrt hér í kreppunni. Öðruvísi mér áður brá.