föstudagur, 7. nóvember 2008

Loksins, loksins komin helgi!


Þessi vika virðist hafa verið óvenjulega lengi að líða, enda allir frekar illa upplagðir, og ferðalög helgina á undan urðu til þess að maður hóf vikuna lúin....og er nú algjörlega örmagna. Planið er að gera sem allra allra minnst næstu daga, enda veðurspáin léleg....vera kannski bara í náttfötunum fram á eftirmiðdag og í mesta lagi fara í smá göngu með heimasætuna. Iðunn var heima með pabba sínum í dag, og var svo heppin að farið var á uppáhaldsstaðinn - Barböruróló! Það þarf ekki mikið til að gleðja lítið hjarta - nokkrar rólusveiflur eru nægar til að lyfta deginum upp á hærra plan!

fimmtudagur, 6. nóvember 2008

Ljósmyndaleysi í skammdeginu

.
Ég verð eiginlega að biðjast afsökunar á hve fáar myndir birtast á Iðunnarsíðum þessa dagana. Á virkum dögum er ég aldrei heima í dagsbirtu og það er svo óskaplega leiðinlegt að taka myndir með flassi - litirnir og myndirnar verða bara ómögulegar. Ég reyni samt alltaf að ná svo sem eins og einni mynd til að setja þó inná bloggið, og þarf samt oft ansi margar til að ná einni skaplegri, og aldrei eru neinar aflögu til að setja á myndasíðuna. Ég hef samt alltaf á samviskunni að ég sé ekki að sinna myndasíðunni nóg, enda ætti náttúrulega að vera auðvelt að fylla margar síður af myndum af svona fínni dömu....ég verð bara að játa að í vetrarmánuðum er ég ekki manneskjan til þess. En alveg að koma helgi og með henni vonandi skaplegri myndir.

Af kommentum/athugasemdum er það að frétta að vandamálin virðast vera upprunnin hjá Google, og svo fremi sem menn halda sig við nafnleyndina ætti að vera hægt að setja athugasemdir hér að vild. Eins er hægt að skrá þær undir gmail notendanafni.

miðvikudagur, 5. nóvember 2008

Remember remember the fifth of November....


Hér er ástandið enn heldur lélegt. Iðunn er enn með hósta og lystarlítil, og ég með hita, hósta og almenna vanlíðan. Helgi, sem hefur verið veikur lengst er ansi mikið skárri en alls ekki algóður. En maður verður bara að harka þetta af sér eins og annað. Iðunn er búin að vera svo heppin í dag að hún var eina barnið á ungbarnadeildinni, og fékk því að hafa Hayley sína alveg út af fyrir sig, og verður víst eins á morgun. Hún fær samt að fara inn á eins árs deildina að leika við stærri krakkana, en er með Hayley sem sinn einkakennara allan tímann, sem er ágætt núna þegar hún er svoldið lítil sér. Annars held ég henni sé svoldið íllt í hálsinum sínum, því grautar, jógúrt, brjóstamjólk og mauk er vinsælla en venjulegur heimilismatur, sem hún hefur annars alltaf viljað frekar. Í kvöld hámaði hún í sig heitan graut og brjóstamjólk og varð öll hressari fyrir vikið, svo ég hugsa að ég segi bara leikskólanum að gefa henni jógúrt (sem er yfirleitt eftirmatur en ekki aðalmáltíð í skólanum) á morgun ef hún vill ekki annað svo hún fái nægan mat í magann sinn.

Smá þroska punktur: Iðunn hefur lengi viljað hjálpa til við að klæða sig úr fötunum, en í dag reyndi hún í fyrsta sinn að klæða sig sjálf í sokka - hún lagði reyndar alltaf sokkinn bara ofan á tásurnar og skildi ekkert í því afhverju hann hélst illa á fæti - men det er tanken der tæller!

Aðrar fréttir eru þær að á meðan Kanarnir hylla Obama brenna Bretarnir Guy Fawkes í dag.......þó lítið sé um bálkesti og flugelda hér í Barnard Castle, sem er kannski eins gott þegar litlar dömur eru að reyna að sofa á sitt græna.....

Remember remember the fifth of November

Gunpowder, treason and plot.

I see no reason why gunpowder, treason

Should ever be forgot..


mánudagur, 3. nóvember 2008

Komin til pabba!


Það var ansi glöð lítil stelpa sem knúsaði pabbann sinn á flugvellinum í Glasgow í gærkvöldi. Og þó hann hafi borið sig vel og líklega notið piparsveinalífsins að einhverju leyti var það samt ansi sæll pabbi sem sótti okkur eftir viku aðskilnað. Við Iðunn náðum lítið að hitta fólk vegna veikinda, enda átti Iðunn ekki nema einn hitalausan dag allan tímann sem við vorum á Íslandi, en við sáum ömmur og afa, og flesta allra nánustu ættingja, og Iðunn fékk að knúsa og spjalla við ömmurnar sínar sem annars búa bara í símtólinu. Við fötuðum hana upp af almennilegum vetrarfatnaði, sumt nýtt, annað gefið af öllu því góða fólki sem er í kringum okkur, og amma Fanney prjónaði tvö ný lopavesti á Iðunni og eitt á mig. Við ætlum að taka myndir af herlegheitunum einhverja næstu daga svo amma geti sett þær á prjónamontssíðuna fínu.
Annað er helst að frétta að í dag kom smiður og gerði við rennufjandann sem hafði eyðilagt undan sér múrverkið. Við sömdum einnig við hann um gólflögn fyrir mánaðamót og herbergissmíð um jólin.
Iðunn er öll að hressast og fer á leikskólann á morgun...mamman skipti við hana og er nú orðin slöpp, en verður þó líklega að mæta í vinnuna til að vinna upp letilífið á Íslandi síðustu daga.

föstudagur, 31. október 2008

Stelpurnar okkar!!!


Iðunn horfði agndofa á leikinn í gærkvöldi. Sterk í henni föðurgenin! Hún fékk nýtt snuð í tilefni dagsins, enda nauðsynlegt að eiga nóg af þeim þegar heilsan er ekki alveg í lagi. Áfram Ísland og stelpurnar okkar!

Ófremdarástand á Ísalandi


Eins og margir eflaust vita erum við Iðunn á Íslandi þessa dagana. Það er alltaf svo gott að vera heima - mér finnsteins og ég andi léttar á Íslandi en annars staðar í veröldinni - sama þó bölmóður og krepputal sé að íþyngja öllum öðrum Frónbúum. Iðunn hefur hins vegar ekki andað mikið léttar því hún náði sér í pestina hans pabba síns og hefur verið heimavið með hósta, hita, kurr í lungum og stíflað nef síðan á þriðjudag. Hún náði reyndar einni heimsókn til Ásdísar Maríu áður en hún lagðist, og fékk svo að vera einn veikindadag hjá ömmu Fanneyju og afa Gunna til að breyta um umhverfi. Veikindunum hafa fylgt langar andvökunætur sem eru öllum erfiðar. Ekki bætir úr að veðrið er búið að vera fagurt og tilvalið til vagnarölts, og bæði móðir og dóttir eru orðnar leiðar á inniveru. En við þessu er ekkert að gera og það er þó betra að vera lasin á Íslandi hjá ömmum sínum en í enska húskuldanum. Snúum aftur á sunnudagskvöld og hlökkum mikið til að hitta Helga aftur.

laugardagur, 25. október 2008

Heimferð á haustdögum


Á morgun, þann 26.október, förum við Iðunn heim að hitta vini og vandamenn. Það er skemmtileg tilviljun að þann sama dag fyrir ári, 26.október 2007, hélt ég heim til Íslands til að eiga stelpuna okkar. Þennan dag í fyrra hafði ég ekki stoppað lengur á Íslandi en 2 vikur samfellt í a.m.k. 10 ár, og nú erum við hægt og sígandi að stefna að heimferð. Í fyrra var það einstaklingur og eiginkona sem steig upp í vélina í Glasgow, en nú verður það móðir og eiginkona...einstaklingur reyndar líka, þó móðurhlutverkið sé ansi ráðandi þessa stundina. Ég minnist þess helst hvað við mamma vorum lúnar þegar við komumst loks í vélina, eftir 48 stunda nær samfelld þrif, í kulda og trekki, hitavatnslausar, og húsið fullt af iðnaðarmönnum. Og hvað við vorum fegnar að vera loksins lagðar af stað heim á leið. Síðan hefur margt á daga okkar allra drifið, og auður margra farið minnkandi, en ég fer að minnsta kosti héðan ansi mikið ríkari nú en þegar ég lagði af stað í heimferðina árið 2007.
Hittumst heima, Una og Iðunn.

föstudagur, 24. október 2008

Langþráðar Iðunnarfréttir


24.október. Fæðingardagur afa Karls.
Nú eru aðeins of margir blogglausir dagar liðnir, amk fyrir ömmurnar. Hins vegar getum við fært þeim góðar fréttir: við tókum loks skyndiákvörðun í kvöld og við Iðunn fljúgum heim núna á sunnudaginn og verðum í viku. Jibbíí jei! Við erum mjög spenntar að komast heim, og Helgi er spenntur að fá heila viku í piparsveinafíling við forritun og bjórdrykkju.
Í öðrum fréttum er það helst að við fengum smið heim á miðvikudag til að gera tilboð í parketlagningu, veggjasmíð og rennuuppsetningu, og fáum við kostnaðaráætlun frá honum á mánudag. Helgi er lasinn með hita og eymd og á ansi bágt en þau feðginin áttu ansi góðan dag saman samt. Annars gerist svo sem ekkert nema vinna vinna vinna og áframhaldandi hversdagsleiki - jú reyndar var húsmóðirin að frétta að hún á boð í fría ferð til Vanuatu í júní 2009.....hljómar spennandi.....
En sem sagt: hvíldardagur á morgun og Ísland á sunnudag. Vonumst til að hitta sem allra flesta á meðan við erum heima!

PS Ef einhver býr svo vel að eiga í geymslu gamla en nothæfa kerru eða hentugan bílstól sem við getum fengið að láni þessa viku eru öll boð vel þegin. Iðunn er enn bara rétt 9 kg og passar enn í ungbarnastóla.....smá en kná! Ferðakerran okkar er ágæt en ekki alveg nógu skjólgóð í vetrarhörkurnar sem Íslendingar hafa þurft að þola að undanförnu.

þriðjudagur, 21. október 2008

2*róló er gott mál


Í dag fékk Iðunn að fara tvisvar á sama rólóinn. Hún varð sem sagt að vera heima í dag vegna gubbupestarinnar, en var orðin ansi leið á heimilislífinu í Victoria Road. Svo pabbi og Iðunn fóru á róló....og þegar mamma kom heim fóru mamma og Iðunn á róló. Rosa stuð ef maður er 10 mánaða og með gullfiskaminni! Jibbí jei róla! Svo kíktum við Iðunn til Barböru vinkonu þar sem henni var tekið sem konungborinni prinsessu, svo það spillti ekki fyrir - ansi góður dagur hjá Iðunni.
Annars er bara tvennt í fréttum: Iðunni var orðið svo kalt að mamman keypti bráðabirgðaúlpu (lesist: rétt vídd, of langar ermar, ekki nógu vantsheld, ekki nógu rúm bla bla bla) fyrir peningana frá Roddy á nr. 5; og Iðunn sofnaði loks í sínu eigin rúmi í kvöld, í fyrsta sinn síðan við byrjuðum á flandrinu öllu í maí. Jeeeeiiiiiiii!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!! Vonandi stefnir á betri tíma því aðal fyrirvinnan getur ekki unnið 8-9 tíma á dag mikið lengur á 2-3 tíma svefni. Hún hefur samt vaknað á klukkutíma fresti síðan hún fór í háttinn svo ég er ekki viss hvort þetta reynist sannur sigur.

mánudagur, 20. október 2008

Lítill lasarus.


Iðunn nældi sér í einhverja uppgangspest á leikskólanum, og eftir hádegi í gær gerði hún sér lítið fyrir og ældi heljarinnar gusum yfir mömmu sína í sönnum Mr Creosot stíl - ekki bara einu sinni, heldur tvisvar. Jibbíjei, gaman að vera mamma! Alltaf gott að vera með ælu alveg inn að nærbuxum. Hún hélt niðri næturgjöfunum, en í morgun þegar þau Helgi fóru á fætur gusaði hún fyrir hann líka, en einhvern vegin tókst honum samt að koma sér undan árásinni og slapp við að blotna sjálfur. Síðan hefur sem betur fer ekkert annað komið upp úr henni svo við erum að vona að þetta sér nú búið, en hún verður að vera heima á morgun til að jafna sig áður en við sendum hana aftur á leikskólann (lesist leikskólinn vill ekki svona múkka til sín). Iðunn hefur samt verið söm við sig meðan á þessu stóð, hress og glöð og hvers manns hugljúfi, og algjörlega hitalaus, svo ástandið er mun verra fyrir foreldrana sem standa í þrifum og þvottum en stúlkuna sjálfa. Hún borðar og drekkur, og nær vonandi fullum bata á morgun.