fimmtudagur, 6. nóvember 2008

Ljósmyndaleysi í skammdeginu

.
Ég verð eiginlega að biðjast afsökunar á hve fáar myndir birtast á Iðunnarsíðum þessa dagana. Á virkum dögum er ég aldrei heima í dagsbirtu og það er svo óskaplega leiðinlegt að taka myndir með flassi - litirnir og myndirnar verða bara ómögulegar. Ég reyni samt alltaf að ná svo sem eins og einni mynd til að setja þó inná bloggið, og þarf samt oft ansi margar til að ná einni skaplegri, og aldrei eru neinar aflögu til að setja á myndasíðuna. Ég hef samt alltaf á samviskunni að ég sé ekki að sinna myndasíðunni nóg, enda ætti náttúrulega að vera auðvelt að fylla margar síður af myndum af svona fínni dömu....ég verð bara að játa að í vetrarmánuðum er ég ekki manneskjan til þess. En alveg að koma helgi og með henni vonandi skaplegri myndir.

Af kommentum/athugasemdum er það að frétta að vandamálin virðast vera upprunnin hjá Google, og svo fremi sem menn halda sig við nafnleyndina ætti að vera hægt að setja athugasemdir hér að vild. Eins er hægt að skrá þær undir gmail notendanafni.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Una mín, bara ein lítil mynd af litlu matargati og smáblogg er nóg til að gleðja lasna ömmu.Ég dáist að því hvað þú ert dugleg að halda þessu fína bloggi gangandi fyrir okkur ömmurnar og aðra ættingja og vini. Hjartans þakkir fyrir það. Amman í turninum.

Nafnlaus sagði...

ég segi nú bara sem myndaáhugamanneskja, að útlit mynda með flassi eða ekki flassi skiptir engu mali þegar maður er að kíkja á svona dúllu eins og Iðunn er :)

Una sagði...

Já hún er náttúrulega langsætust!