föstudagur, 7. nóvember 2008

Loksins, loksins komin helgi!


Þessi vika virðist hafa verið óvenjulega lengi að líða, enda allir frekar illa upplagðir, og ferðalög helgina á undan urðu til þess að maður hóf vikuna lúin....og er nú algjörlega örmagna. Planið er að gera sem allra allra minnst næstu daga, enda veðurspáin léleg....vera kannski bara í náttfötunum fram á eftirmiðdag og í mesta lagi fara í smá göngu með heimasætuna. Iðunn var heima með pabba sínum í dag, og var svo heppin að farið var á uppáhaldsstaðinn - Barböruróló! Það þarf ekki mikið til að gleðja lítið hjarta - nokkrar rólusveiflur eru nægar til að lyfta deginum upp á hærra plan!

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sætust! en dálítið þreytt á þessu róli.
FK amman

Nafnlaus sagði...

mikið er hún með fína húfu !
ks

Nafnlaus sagði...

Já finnst þer ekki? Nýja uppáhaldshúfan! Una