miðvikudagur, 5. nóvember 2008

Remember remember the fifth of November....


Hér er ástandið enn heldur lélegt. Iðunn er enn með hósta og lystarlítil, og ég með hita, hósta og almenna vanlíðan. Helgi, sem hefur verið veikur lengst er ansi mikið skárri en alls ekki algóður. En maður verður bara að harka þetta af sér eins og annað. Iðunn er búin að vera svo heppin í dag að hún var eina barnið á ungbarnadeildinni, og fékk því að hafa Hayley sína alveg út af fyrir sig, og verður víst eins á morgun. Hún fær samt að fara inn á eins árs deildina að leika við stærri krakkana, en er með Hayley sem sinn einkakennara allan tímann, sem er ágætt núna þegar hún er svoldið lítil sér. Annars held ég henni sé svoldið íllt í hálsinum sínum, því grautar, jógúrt, brjóstamjólk og mauk er vinsælla en venjulegur heimilismatur, sem hún hefur annars alltaf viljað frekar. Í kvöld hámaði hún í sig heitan graut og brjóstamjólk og varð öll hressari fyrir vikið, svo ég hugsa að ég segi bara leikskólanum að gefa henni jógúrt (sem er yfirleitt eftirmatur en ekki aðalmáltíð í skólanum) á morgun ef hún vill ekki annað svo hún fái nægan mat í magann sinn.

Smá þroska punktur: Iðunn hefur lengi viljað hjálpa til við að klæða sig úr fötunum, en í dag reyndi hún í fyrsta sinn að klæða sig sjálf í sokka - hún lagði reyndar alltaf sokkinn bara ofan á tásurnar og skildi ekkert í því afhverju hann hélst illa á fæti - men det er tanken der tæller!

Aðrar fréttir eru þær að á meðan Kanarnir hylla Obama brenna Bretarnir Guy Fawkes í dag.......þó lítið sé um bálkesti og flugelda hér í Barnard Castle, sem er kannski eins gott þegar litlar dömur eru að reyna að sofa á sitt græna.....

Remember remember the fifth of November

Gunpowder, treason and plot.

I see no reason why gunpowder, treason

Should ever be forgot..


2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hér er líka eymd og volæði. Iðunnarpestin er búin að leggja ömmuna að velli. Neyddist til að vera heima í bólinu í dag með hálsbólgu og hita og enginn til að vorkenna mér nema kisa. Ó, mig auma!Vona að við förum öll að hressast hið bráðasta. Knús frá ömmunni í turninum.

Nafnlaus sagði...

Skelfing er að heyra um þetta heilsuleysi á fólkinu. Vona að þið farið nú að hrista þetta af ykkur. Iðunn er efnileg, eins og allir vita, en það er ekki heiglum hent að vita hvernig sokkar virka.
Amma fk