mánudagur, 30. mars 2009

Síðasti vinnudagurinn í bili...


Síðasta færsla frá Barnard Castle þennan mánuðinn.
Í dag var síðasti vinnudagurinn minn fyrir páska og var hann svo stressandi og ömurlegur í alla staði að best er að hafa sem fæst orð um hann. Hins vegar var smá sól í garðinum þegar ég kom heim uppúr klukkan fimm og settumst við út í kvöldsólina í nokkrar mínútur. Yndislegt!
Morgundagurinn verður langur....förum héðan um hádegi, flug frá Newcastle til London kl 13.35, svo löng bið á Heathrow áður en við komumst í flugið til Chicago.....ég hugsa að allir verði komnir á síðasta snúning þegar við lendum loks í Chicago klukkan 20.05 að staðartíma. Þá er gott að vera búin að panta pláss á fínu hóteli...
Bless í bili, heyrumst næst í Chicago.

sunnudagur, 29. mars 2009

Bókasafnsfræðingar skulu líta undan núna....


Kominn sumartími í UK - vorið reyndar horfið, en klukkan segir víst annað - þannig að við erum klukkutíma á undan Íslandi héðanífrá.

Eftir svaðilförina í IKEA um síðustu helgi dróst í heila viku að setja saman hillurnar góðu, en nú eru þær loks komnar í gagnið eftir að Iðunn lagði pabba sínum lið við samsetninguna! Jibbíjei, heimilisskipulagið er strax orðið mun betra!


Ég man þegar afi minn Bragi kom hingað í heimsókn og raðaði í íslensku hillurnar fyrir mig...hann raðaði eftir gæðum - Snorra Hjartarsyni hampað hærra en Tómasi Guðmundssyni osfrv. Skemmtileg aðferð en veldur eflaust hjartsláttartruflunum hjá bókasafnsfræðingum. Þegar raðað var í nýju hillurnar var ákveðið að taka upp enn aðra aðferð við hilluröðun og er raðað í þessa eftir bókakápulit. Ég sé Dewey-decimal nörda blogglesenda okkar súpa hveljur við tilhugsunina eina saman. kemur samt voða smart út eins og sjá má hér að neðan, þó það verði áhugavert verkefni að ramba á rétta bók eftir litaminni.....


fimmtudagur, 26. mars 2009

T eins og í tímaleysi...


.....og því lítið verið bloggað hér síðustu daga. Alltaf nóg að gera hér í Barnard Castle. Helgi hefur þurft að verja mörgum dögum í Hull. Ég fór á skólasöngleik á þriðjudagskvöld að sjá uppfærslu Barnard Castle School á We Will Rock You, sem kom skemmtilega á óvart. Í gær fórum við svo til York í mat og gistingu hjá Paul O´Higgins og fjölskyldu hans. Iðunni fannst það svoooooo mikið stuð, og vakti allt húsið með blokkflautu og píanóleik um 6 í morgun - maður kemst nú upp með ýmislegt þegar maður er 15 mánaða og ubersæt. Í dag fór Iðunn svo með mér til vinnu, var í pössun hjá riturunum meðan ég fór á fund, og Helgi fór að spjalla um doktorsverkefni við ráðamenn í Hull og York. Nóg að gera!
Eins og sjá má á greinargerðinni hér til hliðar erum við á leið til Chicago á þriðjudaginn í næstu viku, og þaðan til afa Viðars. Við gistum á einhverju svakalegu lúsuxhóteli í Chicago (www.jameshotels.com) sem við fundum á hotwire.com. Það er gott að komast á fínt hótel fyrir lítinn pening! Við hlökkum mikið til enda verða margir bestu vinir okkar sem við hittum allt of sjaldan á ráðstefnunni í Chicago. Við munum reyna að halda uppi bloggfærslum á ferðalaginu, svo ömmurnar og aðrir tryggir lesendur fái ekki fráhvarfseinkenni!
Nóg í bili...

sunnudagur, 22. mars 2009

Mæðradagur til mæðu...


Brúðkaupsafmæli ömmu Fanneyjar og afa Gunna - Til hamingju með daginn!!

Mæðradagurinn (Mothering Sunday) er haldinn hátíðlegur í Bretlandi í dag, og í tilefni þessa kom Iðunn heim af leikskólanum með flottasta kort sem mamman hefur nokkurntíma séð - þakið glimmer og lími og spottum að utan, og með fallegum skilaboðum frá Iðunni minni inní. Það þarf lítið til að verma móðurhjartað.
Annars var dagurinn ekkert sérstaklega skemmtilegur - við fórum nefnilega í IKEA að kaupa bókahillur í gestaherbergið. Það er EKKERT verra en IKEA á sunnudagseftirmiðdegi. Allt stappað, allir ganga löturhægt, hver einasti maður með amk 3 grenjandi börn og eina ömmu í eftirdragi...úff, meira að segja Helgi var farinn að froðufella eftir 5 mínútur. Við sluppum lokst eftir 1 1/2 tíma, og ókum heim klukkutímaleið í hávaðaroki með skottið opið og bílinn fullan af bókahillum upp í rjáfur. Eins gott að Iðunn var í lopapeysu. Henni fannst þetta samt ekki skemmtilegt ferðalag, enda búið að troða drasli allt í kringum hana.
Vikan fram undan verður aðeins öðruvísi en venjulega. Helgi þarf að fara til Hull flesta dagana og við Iðunn verjum því meiri tíma saman, sem er bara skemmtilegt.
Nóg í bili...

laugardagur, 21. mars 2009

Vorverk á jafndægrum


Aldrei þessu vant hélst góða veðrið fram að helgi - yndislegt! Við nýttum daginn vel eins og sannir Íslendingar sem tolla ekki inni þegar sólin skín. Drukkum morgunkaffi á tröppunum fyrir framan húsið. Tókum gott skurk í bakgarðinum, klipptum runna, reyttum arfa, hreinsuðum almennt til og undirbjuggum G og T stéttina undir sumarið. Nú er bara að vona að það komi sumar í ár....2007 og 2008 voru bæði sumarlaus hér í BC. Svo þvoði ég 3 vélar og hengdi út á snúru, og að lokum tókum við smá göngu niðrí bæ. Það vannst meira að segja tími til að líma upp blómagírafann á vegginn í nýja Iðunnarherberginu.
Svona eiga laugardagar að vera!

Iðunnarherbergi


Nú er Iðunn orðin svo stór stelpa að hún hefur fengið sitt eigið herbergi. Enn betra er að hún er flutt í það og farin að sofa allar nætur í eigin rúmi (og loks hætt að drekka á nóttunni), foreldrunum til mikillar ánægju. Hér gefur að líta myndir af herlegheitunum!


miðvikudagur, 18. mars 2009

Fyrsti vordagurinn



Í dag var fyrsti almennilegi vordagurinn í County Durham. Hiti fór upp í 15 stig og Helgi fór í sumarklippingu í tilefni dagsins. Húsfreyja sat því miður fundi innivið í allan dag, en náði þó kvöldkorteri í garðinum í faðmi fjölskyldunnar. Yndislegt!

þriðjudagur, 17. mars 2009

Ömmulaus Iðunn


Eftir 6 daga í Barnard Castle hélt amma af stað heim á leið eftir hádegi í dag. Hér er búið að ganga á ýmsu. Iðunn var veik frá föstudegi fram á mánudag og er fyrst núna að skríða saman. Svo fékk ég gubbupestina í nótt og var alveg ónýt í dag eftir svefnlausa nótt og með endalausan flökurleika. Við náðum nú samt að njóta þess að hafa hana hjá okkur, og fórum til Harrogate, Darlington, og í Metrocenterið. Þegar upp er staðið er eldhúsið hreinna, herbergið hennar Iðunnar að verða tilbúið, komin hlið á stigann, ísskápurinn glansandi að innan, og mikið búið að skrafa og hlæja og njóta samverunnar. Það er svo gott að fá ömmu í heimsókn, þó það sé sárt að kveðja hana aftur.
Takk fyrir komuna elsku amma Gobba!

mánudagur, 16. mars 2009

Stórafmæli


Í öllum veikindunum gleymdist algerlega að geta þess að þann 14. mars átti kjarnakonan Sigrún, langafasystir Iðunnar, níræðisafmæli. Það var leitt að missa af þeim merkisviðburði, enda alltaf gaman að vera þar sem Borghildarafkomendur koma saman. Óskum við henni til hamingju með daginn, þó seint sé.

laugardagur, 14. mars 2009

Iðunn lasin


Hér er ekki alveg nógu gott ástand. Mamman var kölluð úr kennslu í gær að sækja Iðunni sem var sárlasin á leikskólanum og búin að kasta upp þrisvar sinnum. Ég yfirgaf stúdentana, skutlaðist eftir Iðunni, og kenndi svo seinni helming tímans með Iðunni upp á arminn. Á leiðinni heim kastaði hún upp yfir allan stólinn og sjálfa sig, og hefur verið síspúandi síðan. Þvottavélin hefur gengið nánast non-stop síðustu 28 tímana og allir orðnir samdauna súrmjólkurlyktinni sem liggur yfir öllu heimilinu. Í dag hefur hún verið með hita og óskaplega slöpp og ælt nánast öllu sem hægt er að koma ofan í hana. Ófremdarástand. Þá er nú gott að hafa ömmu í heimsókn til að létta undir og létta lundina. Iðunn er búin að eiga góðar stundir í ömmufangi.
Við vonumst eftir betri degi á morgun.