Í dag var fyrsti almennilegi vordagurinn í County Durham. Hiti fór upp í 15 stig og Helgi fór í sumarklippingu í tilefni dagsins. Húsfreyja sat því miður fundi innivið í allan dag, en náði þó kvöldkorteri í garðinum í faðmi fjölskyldunnar. Yndislegt!
5 ummæli:
15stig! öfund
ks
Ég vildi að það væru bara 15 stiga hiti hér...
Gæðum heimsins er misskipt. En 37 stiga hiti hjá Einari í Indlandi, 15 stig hjá Helga og 8 stig í Hafnarfirði er að meðaltali ágætis hitastig.
FK í bjartsýniskasti
Gat nú verið að vorið kæmi fyrir alvöru daginn eftir að ég fór. Mér fannst nú samt vera heilmikið vor í lofti þessa daga þó hitastigið væri lægra.Gott að sjá að Iðunn er orðin spræk og sjálfri sér lík.
Amman vorglaða
iiss...vorið er komið hingað líka (þó með smá roki). Í dag er vorjafndægur og þá er þetta allt að koma.
kv,
Hildur
Skrifa ummæli