sunnudagur, 22. mars 2009

Mæðradagur til mæðu...


Brúðkaupsafmæli ömmu Fanneyjar og afa Gunna - Til hamingju með daginn!!

Mæðradagurinn (Mothering Sunday) er haldinn hátíðlegur í Bretlandi í dag, og í tilefni þessa kom Iðunn heim af leikskólanum með flottasta kort sem mamman hefur nokkurntíma séð - þakið glimmer og lími og spottum að utan, og með fallegum skilaboðum frá Iðunni minni inní. Það þarf lítið til að verma móðurhjartað.
Annars var dagurinn ekkert sérstaklega skemmtilegur - við fórum nefnilega í IKEA að kaupa bókahillur í gestaherbergið. Það er EKKERT verra en IKEA á sunnudagseftirmiðdegi. Allt stappað, allir ganga löturhægt, hver einasti maður með amk 3 grenjandi börn og eina ömmu í eftirdragi...úff, meira að segja Helgi var farinn að froðufella eftir 5 mínútur. Við sluppum lokst eftir 1 1/2 tíma, og ókum heim klukkutímaleið í hávaðaroki með skottið opið og bílinn fullan af bókahillum upp í rjáfur. Eins gott að Iðunn var í lopapeysu. Henni fannst þetta samt ekki skemmtilegt ferðalag, enda búið að troða drasli allt í kringum hana.
Vikan fram undan verður aðeins öðruvísi en venjulega. Helgi þarf að fara til Hull flesta dagana og við Iðunn verjum því meiri tíma saman, sem er bara skemmtilegt.
Nóg í bili...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég hefði glöð lagt á mig IKEA ferð skv lýsingu bara til að sjá Helga tengdason minn, þetta einstaka prúðmenni, froðufella af pirringi.
Amman í turninum

Nafnlaus sagði...

ómægod hvað þetta er fyndin mynd af Iðunni
ks

Nafnlaus sagði...

Kommentið sem ég skrifaði í gær birtist ekki. Baðmyndin þyrfti að vera með hljóði. Þetta er örugglega nálæt háa C-inu. Gott að æfa sig í baðinu.
fk amman