laugardagur, 21. mars 2009

Vorverk á jafndægrum


Aldrei þessu vant hélst góða veðrið fram að helgi - yndislegt! Við nýttum daginn vel eins og sannir Íslendingar sem tolla ekki inni þegar sólin skín. Drukkum morgunkaffi á tröppunum fyrir framan húsið. Tókum gott skurk í bakgarðinum, klipptum runna, reyttum arfa, hreinsuðum almennt til og undirbjuggum G og T stéttina undir sumarið. Nú er bara að vona að það komi sumar í ár....2007 og 2008 voru bæði sumarlaus hér í BC. Svo þvoði ég 3 vélar og hengdi út á snúru, og að lokum tókum við smá göngu niðrí bæ. Það vannst meira að segja tími til að líma upp blómagírafann á vegginn í nýja Iðunnarherberginu.
Svona eiga laugardagar að vera!

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Litli græninginn minn, hress að vanda. Hér snjóaði í dag! Langar í G & T á bekkum góða.
Amma G & T

Nafnlaus sagði...

hhmm...kannast ekki við þetta íslenska heilkenni að fara alltaf út þegar sólin skín. Sé engan tilgang með því oft, enda mjög líklega bara gluggaveður :)

kv,
Hildur