fimmtudagur, 26. mars 2009

T eins og í tímaleysi...


.....og því lítið verið bloggað hér síðustu daga. Alltaf nóg að gera hér í Barnard Castle. Helgi hefur þurft að verja mörgum dögum í Hull. Ég fór á skólasöngleik á þriðjudagskvöld að sjá uppfærslu Barnard Castle School á We Will Rock You, sem kom skemmtilega á óvart. Í gær fórum við svo til York í mat og gistingu hjá Paul O´Higgins og fjölskyldu hans. Iðunni fannst það svoooooo mikið stuð, og vakti allt húsið með blokkflautu og píanóleik um 6 í morgun - maður kemst nú upp með ýmislegt þegar maður er 15 mánaða og ubersæt. Í dag fór Iðunn svo með mér til vinnu, var í pössun hjá riturunum meðan ég fór á fund, og Helgi fór að spjalla um doktorsverkefni við ráðamenn í Hull og York. Nóg að gera!
Eins og sjá má á greinargerðinni hér til hliðar erum við á leið til Chicago á þriðjudaginn í næstu viku, og þaðan til afa Viðars. Við gistum á einhverju svakalegu lúsuxhóteli í Chicago (www.jameshotels.com) sem við fundum á hotwire.com. Það er gott að komast á fínt hótel fyrir lítinn pening! Við hlökkum mikið til enda verða margir bestu vinir okkar sem við hittum allt of sjaldan á ráðstefnunni í Chicago. Við munum reyna að halda uppi bloggfærslum á ferðalaginu, svo ömmurnar og aðrir tryggir lesendur fái ekki fráhvarfseinkenni!
Nóg í bili...

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

"svart-hvíta" myndin er frábær!

kv,
Hildur

Nafnlaus sagði...

Já, ég tek undir það, svart-blá væri kannski réttara. Gaman að geta leikið sér svona með myndirnar.
Amman sem saknar Iðunnar sinnar.

Nafnlaus sagði...

Litla kerlingin verður aldeildis orðin veraldarvön. Hún þeytist yfir hálfan hnöttinn eins og ekkert sé.
Heimakæra amman fk