Síðasta færsla frá Barnard Castle þennan mánuðinn.
Í dag var síðasti vinnudagurinn minn fyrir páska og var hann svo stressandi og ömurlegur í alla staði að best er að hafa sem fæst orð um hann. Hins vegar var smá sól í garðinum þegar ég kom heim uppúr klukkan fimm og settumst við út í kvöldsólina í nokkrar mínútur. Yndislegt!
Morgundagurinn verður langur....förum héðan um hádegi, flug frá Newcastle til London kl 13.35, svo löng bið á Heathrow áður en við komumst í flugið til Chicago.....ég hugsa að allir verði komnir á síðasta snúning þegar við lendum loks í Chicago klukkan 20.05 að staðartíma. Þá er gott að vera búin að panta pláss á fínu hóteli...
Bless í bili, heyrumst næst í Chicago.
2 ummæli:
Bless, bless litla Iðunn og þið öll. Góða ferð til Chicago. Ekki gleyma að blogga fyrir ömmurnar, annars veslast þær upp.
Amman í turninum
Góða ferð öll, vonandi gengur þetta allt saman vel!
Diljá
Skrifa ummæli