Eftir 6 daga í Barnard Castle hélt amma af stað heim á leið eftir hádegi í dag. Hér er búið að ganga á ýmsu. Iðunn var veik frá föstudegi fram á mánudag og er fyrst núna að skríða saman. Svo fékk ég gubbupestina í nótt og var alveg ónýt í dag eftir svefnlausa nótt og með endalausan flökurleika. Við náðum nú samt að njóta þess að hafa hana hjá okkur, og fórum til Harrogate, Darlington, og í Metrocenterið. Þegar upp er staðið er eldhúsið hreinna, herbergið hennar Iðunnar að verða tilbúið, komin hlið á stigann, ísskápurinn glansandi að innan, og mikið búið að skrafa og hlæja og njóta samverunnar. Það er svo gott að fá ömmu í heimsókn, þó það sé sárt að kveðja hana aftur.
Takk fyrir komuna elsku amma Gobba!
4 ummæli:
"Þegar upp er staðið er eldhúsið hreinna, herbergið hennar Iðunnar að verða tilbúið, komin hlið á stigann, ísskápurinn glansandi að innan"
...sá amma Gobba um allt þetta? Þarf að fá hana í heimsókn til mín. Hún getur sofið á sófanum :)
kv,
Hildur
Já amma tók eldhússkurk, kom með mér í IKEA og tók ísskápinn í gegn með mér - mjööög gott að fá hana í heimsókn!
Hún er líka velkomin á Sævanginn hvenær sem er.
FK amman
Það er einhvern veginn skemmtilegra að gera skurk hjá öðrum. Kannski ættum við að koma okkur upp skipti skurk kerfi: ef þú tekur ísskápinn hjá mér tek ég kompuna hjá þér osfrv.
Amman Iðunnarlausa
Skrifa ummæli