Kominn sumartími í UK - vorið reyndar horfið, en klukkan segir víst annað - þannig að við erum klukkutíma á undan Íslandi héðanífrá.
Eftir svaðilförina í IKEA um síðustu helgi dróst í heila viku að setja saman hillurnar góðu, en nú eru þær loks komnar í gagnið eftir að Iðunn lagði pabba sínum lið við samsetninguna! Jibbíjei, heimilisskipulagið er strax orðið mun betra!
Ég man þegar afi minn Bragi kom hingað í heimsókn og raðaði í íslensku hillurnar fyrir mig...hann raðaði eftir gæðum - Snorra Hjartarsyni hampað hærra en Tómasi Guðmundssyni osfrv. Skemmtileg aðferð en veldur eflaust hjartsláttartruflunum hjá bókasafnsfræðingum. Þegar raðað var í nýju hillurnar var ákveðið að taka upp enn aðra aðferð við hilluröðun og er raðað í þessa eftir bókakápulit. Ég sé Dewey-decimal nörda blogglesenda okkar súpa hveljur við tilhugsunina eina saman. kemur samt voða smart út eins og sjá má hér að neðan, þó það verði áhugavert verkefni að ramba á rétta bók eftir litaminni.....
3 ummæli:
þetta er cool!
kv,
Hildur
Við Æsa munum mæta þarna bráðlega vopnaðar Dewey Desimal Classification catalogue og ráðast á bókahillurnar. Annars finnst mér flokkunarkerfi Einars Braga frábært. Það mætti vel taka það til fyrirmyndar.
Amma Dewey
Ég er sammála. Flokkunarkerfi afa Braga er skemmtilega sérviskulegt og hægt að aðlaga sérvisku hvers og eins. Litgreiningarkerfið fer hins vegar mjög vel í hillunum. Litli handlangarinn er ótrúlega fagmannleg með skrúfjárnið.
Amma G
Skrifa ummæli