miðvikudagur, 29. apríl 2009

Loksins 7!


Sjöunda tönnin er loksins komin! Iðunn á eftir tæpar tvær vikur í 17 mánuði og loksins loksins er þriðja framtönnin í neðri góm að líta dagsins ljós. Reyndar hefur enn ekki náðst mynd af dýrgripnum, en það stendur vonandi til bóta. Þangað til verða lesendur bara að njóta dagsgamallar myndar af Iðunni og Beamish að spjalla saman.

þriðjudagur, 28. apríl 2009

Stígvélafréttir


Enn einn merkisdagurinn í dag: Iðunn var heilan dag á stóru (stærri) barna deildinni í Stígvélabæ. Allt gekk vel, stelpan sæl - hafði sungið og litað og spilað á hljóðfæri, og meira að segja eignast nýja vinkonu - ekki amalegt á einum degi.
Verra er að vorið er horfið og komið ekta enskt rigningarveður...vonum bara að rigningin verði horfin í næstu viku þegar von er á ömmu FK í heimsókn.

sunnudagur, 26. apríl 2009

Nýr garður!



Hann Helgi er búinn að standa sig eins og hetja í garðvinnunni síðustu daga og hér má loks sjá árangur erfiðisins. Nú vantar bara borð og stóla til að geta borðað úti, og sumarblóm í potta og beð. Iðunn er búin að vera iðin að hjálpa honum, enda dugleg stelpa eins og allir vita. Það er aldeilis munur að hafa svona klárt fólk með sér í heimili.

laugardagur, 25. apríl 2009

Iðunn á örlagadegi


25.apríl 2009 - Kosningadagur búsáhaldabyltingarmanna

Merkisdagur í dag - sér vonandi fyrir endann á allt of langri einokunarstjórn Sjálfstæðisflokks og komið að upprisu vinstri manna - verst að hvorki afi Bragi né amma Borghildur hin eldri fengu að njóta hans.
Eplafjölskyldan er þó atkvæðalaus því ónytjungurinn sem er ræðismaður Íslands í Newcastle tekur hvorki við pósti né símtölum, og sýður í eplapabba og eplamömmu að þurfa að hafa látið atkvæði sín fara forgorðum - vonandi sækir draugur Jóns Sigurðssonar ræðismanninn heim í nótt!

föstudagur, 24. apríl 2009

Fréttaskot


Hér er búið að vera nóg að gera síðustu daga. Iðunn fékk skyndimagapest á miðvikudagskvöld, allt gekk upp og niður og mikið þvottastand sem því fylgdi, en stelpan var reyndar mjög hress og hitalaus, og orðin alfrísk aftur eftir ca. 12 tíma. Mamman er búin að sitja sveitt yfir ritgerðum og á eftir að fara yfir 40 til viðbótar yfir helgina, svo það mun ekki gefast mikill tími til hvíldar í þessari viku. Hér er búið að vera yndislegt veður alla vikuna en á reyndar að fara að rigna á morgun.....týpískt!
Iðunnin er að taka miklum framförum í göngumálum - 6 skref í fyrradag, fleiri í dag, svo hún verður líklega farin að hlaupa um allt í mai. En ef hún þreytist á því má alltaf hvíla sig í nýju ferðakerrunni sem sjá má á myndinni hér að ofan (Iðunn var hálflasin þegar myndin var tekin og því ekkert sérstaklega kát á svip). Gamla ferðakerran var orðin ansi lúin eftir margar flugferðir svo við fjárfestum í sterkari regnhlífakerru frá Maclaren. Takið eftir að kerran fylgir að sjálfsögðu eplaþema familíunnar!
Nóg í bili - Gleðilegt sumar!

mánudagur, 20. apríl 2009

Framkvæmdagleði að vori



Eftir ansi gott veður í gær (sól, logn en kannski ekki alveg nógu mikinn hita), gerði loks ekta yndislegt vorveður í dag - logn, sól, jafnvel hlýtt í skugganum og mamman fór úr bæði sokkabuxum og gammósíum. Iðunn sprangaði um allt á tásunum og meira að segja Helgi fór í stuttermabol! Við nýttum þessa yndislegu daga til að taka annað skurk í garðinum - losa okkur við allt grasið og útbúa malarsvæði undir matarborð og stóla. Nú er allt tilbúið og mölin kemur á morgun. Þetta er að verða hinn prýðilegasti garður.
Iðunn naut sólarinnar og útiverunnar, en var hálf hissa á þessu skóleysi, enda skór uppáhaldshlutir heimasætunnar. Spáð er hlýnandi veðri næstu daga...

laugardagur, 18. apríl 2009

Sandkassablogg


Iðunn og eplin fjárfestu í sandkassa.
Sandkassinn er að sjálfsögðu eplalaga.
Lítil fjárfesting sem þegar hefur borgað sig margfalt í ávaxtaðri gleði!

Svo er náttúrulega löngu kominn tími á vídjó - hér er eitt heldur tíðindalítið þar sem þó má sjá Iðunnina njóta sandkassans...vinsamlegast skrúfið niður í hljóðinu til að þurfa ekki að hlusta á bullið í mömmu myndasmið.

fimmtudagur, 16. apríl 2009

Allt er steikt sem vel er bleikt...



Eins og margir vita er húsmóðirin á heimilinu ekki sérstaklega hrifin af bleikum barnafötum. Hins vegar eru auðvitað undantekningar á þeirru reglu eins og öllum öðrum. Hvað er flottara en vesti frá ömmu FK og samfella með BLEIKUM dráttarvélum - ubercool!!

Dampland


Við erum komin aftur til Englands....hér hefur verið þoka og skítakuldi síðan við komum heim, rakinn alveg að fara með okkur eftir sólina í Svíþjóð - ég sagði við Donnu vinkonu mína í gær að ég er að spá í að endurnefna England Dampland, eða Rakaland, því rakur og grár hversdagsleikinn einkennir allt hér sem stendur.
Flugið heim gekk vel, enda ekki nema 1 1/2 tími í lítilli rellu beint til Newcastle, og Iðunnin svaf alla leiðina sem gerði ferðina einnig auðveldari. Ekki var verra að við vorum komin snemma heim - alla leið heim í hús fyrir klukkan ellefu um morguninn, svo við áttum allan daginn heima. Iðunn byrjaði svo aftur á leikskólanum sínum í gær, en var víst ansi rellin og lítil sér eftir að hafa fengið að vera hjá mömmu og pabba í 2 vikur. Ég held að það hafi líka háð henni svoldið að hún hefur tekið miklum framförum í orðaforða síðustu vikurnar og þó foreldrarnir skilji það sem hún segir áttu fóstrurnar erfitt með íslenskuna, sem er ansi frústrerandi fyrir litla snillinga. Annars er búið að ákveða að Iðunn færist upp um deild 5.mai, á afmæli afa Viðars og fæðingardegi Karls Marx. Hún er orðin svo áberandi miklu þroskaðri en litlu krakkarnir að hún hefur eflaust gott af að umgangast stærri krakka og leika sér við þá.

Ég hef ekki tekið neinar myndir síðan við komum aftur, svo ég læt í staðin fylgja vormynd af Iðunni í Svíaríki.

PS Smá samantekt á 16 mánaða orðaforðanum: skór (og shoe), takk (og thank you), kisa, voff voff, mjá, pabbi, mamma, skeið, amma, afi, NEI, eyra, nebbi, hár, róró (þegar syngja skal róró á selabát) na na (með bendingum og merkir Iðunn vill þetta), namm namm (um mat), halló, hæ, bæ (þessar ensku slettur lærir hún á leikskólanum, ekki hér heima), datt, allt bú(ið). Eflaust fleira sem ég man ekki eftir í bili.

laugardagur, 11. apríl 2009

Krakkar!


Hér var mikið fjör í gær þegar Tina kom með krakkana sína. Iðunni þótti þau svooooo skemmtileg, og þá sérstaklega Emma. Hún elti Emmu um allt hús og vildi gera allt eins og hún - hoppa, dansa, vera í boltaleik. Eina sem skyggði á gleðina var þegar litla daman skall í gólfið og meiddi sig á vörinni, en sú sorg entist stutt enda engin leið að vera stúrin þegar krakkar eru í heimsókn!