Hér var mikið fjör í gær þegar Tina kom með krakkana sína. Iðunni þótti þau svooooo skemmtileg, og þá sérstaklega Emma. Hún elti Emmu um allt hús og vildi gera allt eins og hún - hoppa, dansa, vera í boltaleik. Eina sem skyggði á gleðina var þegar litla daman skall í gólfið og meiddi sig á vörinni, en sú sorg entist stutt enda engin leið að vera stúrin þegar krakkar eru í heimsókn!
2 ummæli:
Hún er öll blá og marin. Setjið á hana sænskan hjálm og hjálpardekk.
áhyggjufulla amman fk
Megastuð er orðið! Hvað eru nokkrir marblettir milli vina. Gaman að fá svona margar skemmtilegar myndir. Greinilegt að skræpumamman hefur komist í sænska skræpubúð. Ekkert bleikt í sjónmáli.
Við Diljá erum að undirbúa gestaboð á morgun, namm, namm.
Amma eldabuska
Skrifa ummæli