Við erum komin aftur til Englands....hér hefur verið þoka og skítakuldi síðan við komum heim, rakinn alveg að fara með okkur eftir sólina í Svíþjóð - ég sagði við Donnu vinkonu mína í gær að ég er að spá í að endurnefna England Dampland, eða Rakaland, því rakur og grár hversdagsleikinn einkennir allt hér sem stendur.
Flugið heim gekk vel, enda ekki nema 1 1/2 tími í lítilli rellu beint til Newcastle, og Iðunnin svaf alla leiðina sem gerði ferðina einnig auðveldari. Ekki var verra að við vorum komin snemma heim - alla leið heim í hús fyrir klukkan ellefu um morguninn, svo við áttum allan daginn heima. Iðunn byrjaði svo aftur á leikskólanum sínum í gær, en var víst ansi rellin og lítil sér eftir að hafa fengið að vera hjá mömmu og pabba í 2 vikur. Ég held að það hafi líka háð henni svoldið að hún hefur tekið miklum framförum í orðaforða síðustu vikurnar og þó foreldrarnir skilji það sem hún segir áttu fóstrurnar erfitt með íslenskuna, sem er ansi frústrerandi fyrir litla snillinga. Annars er búið að ákveða að Iðunn færist upp um deild 5.mai, á afmæli afa Viðars og fæðingardegi Karls Marx. Hún er orðin svo áberandi miklu þroskaðri en litlu krakkarnir að hún hefur eflaust gott af að umgangast stærri krakka og leika sér við þá.
Ég hef ekki tekið neinar myndir síðan við komum aftur, svo ég læt í staðin fylgja vormynd af Iðunni í Svíaríki.
PS Smá samantekt á 16 mánaða orðaforðanum: skór (og shoe), takk (og thank you), kisa, voff voff, mjá, pabbi, mamma, skeið, amma, afi, NEI, eyra, nebbi, hár, róró (þegar syngja skal róró á selabát) na na (með bendingum og merkir Iðunn vill þetta), namm namm (um mat), halló, hæ, bæ (þessar ensku slettur lærir hún á leikskólanum, ekki hér heima), datt, allt bú(ið). Eflaust fleira sem ég man ekki eftir í bili.
4 ummæli:
Húrra, húrra. Hún er farin að segja amma. Lengi höfum við ömmurnar beðið. Held ég fari bara að heimsækja ykkur fljótlega, ætla samt að bíða eftir betra veðri.
FK amman
Það fyrsta sem Dagur lærði var "allt búið" og benti á matinn.
kv Örvar
Iðunn segir einmitt "Ah bú" og setur upp svona "voða hissa" svip og yppir öxlum með lófana upp í loft í axlarhæð...mjög fyndið!
Ansi góður orðaforði og til margs brúklegur. Hún á samt talsvert í land með að ná mömmunni sinni í þessum efnum.
Amma G
Skrifa ummæli