Eftir ansi gott veður í gær (sól, logn en kannski ekki alveg nógu mikinn hita), gerði loks ekta yndislegt vorveður í dag - logn, sól, jafnvel hlýtt í skugganum og mamman fór úr bæði sokkabuxum og gammósíum. Iðunn sprangaði um allt á tásunum og meira að segja Helgi fór í stuttermabol! Við nýttum þessa yndislegu daga til að taka annað skurk í garðinum - losa okkur við allt grasið og útbúa malarsvæði undir matarborð og stóla. Nú er allt tilbúið og mölin kemur á morgun. Þetta er að verða hinn prýðilegasti garður.
Iðunn naut sólarinnar og útiverunnar, en var hálf hissa á þessu skóleysi, enda skór uppáhaldshlutir heimasætunnar. Spáð er hlýnandi veðri næstu daga...
2 ummæli:
Sú er ánægð með sig á tásunum í grallarabuxunum. Hlakka til að komast í G og T í nýjum og endurbættum garði.
Amma G og T
Ok ég er á leiðinni. Haldið þessu veðri næstu vikurnar.
fk amman á faraldsfæti
Skrifa ummæli