
Iðunn og eplin fjárfestu í sandkassa.
Sandkassinn er að sjálfsögðu eplalaga.
Lítil fjárfesting sem þegar hefur borgað sig margfalt í ávaxtaðri gleði!
Svo er náttúrulega löngu kominn tími á vídjó - hér er eitt heldur tíðindalítið þar sem þó má sjá Iðunnina njóta sandkassans...vinsamlegast skrúfið niður í hljóðinu til að þurfa ekki að hlusta á bullið í mömmu myndasmið.
2 ummæli:
Skemmtilegt!!!!!!!! Hún er svo dásamlega einbeitt við moksturinn.
Amman í turninum
Þetta er alveg frábært ömmu-myndband. Jafnast fyllilega á við Oscarsverðlaunakvikmynd af betri gerðinni. Þarna er efnileg athafnakona að störum.
FK amman
Skrifa ummæli