Litla pæjan átti yndislegan dag. Fyrst var farið með köku í leikskólann, og þar var búið að hengja upp borða sem á var áletrað "1 today - Happy Birthday!" Hún kom sæl heim eftir yndislegan dag með gyllta glimmerlímda kórónu og kökumylsnu í sokkunum. Svo tók ekki verra við. Donna kom í heimsókn með tvo pakka og eplaköku í farteskinu, og svo kíktu Barbar og dóttir hennar við með afmæliskort.
Iðunn fékk Brio göngukerru frá foreldrum sínum, bók frá Pat í mömmuvinnu, og timbur-rúllu-snák og bleikt (!) körfuveski frá Donnu. Allt rosalega vinsælt hjá afmælibarninu. Hún reisti sig strax upp við vagninn og gekk á eftir honum eins og hún hafi aldrei gert annað (í fyrsta sinn sem hún gengur á eftir einhverju), keyrði snákinn um allt, og tíndi alls konar dót upp í veskið. Mikið fjör. Þar sem mamman hafði bakað leikskólakökuna (var á fótum kl. 5.30 að búa til krem!) tók Helgi að sér að baka "heima" kökuna, og tókst honum ljómandi vel til. Nammi namm! Gaman núna, eins og við mamma segjum stundum!
Lasna mamman er samt alveg búin eftir daginn og er farin að sofa.
3 ummæli:
Til hamingju með daginn snúlla, knús frá Hamrahlíðinni
Aldeilis skemmtilegur afmælisdagur. Nú fer að styttast í það að við getum knúsað Iðunni afmælisbarn. Það verður gaman.
FK amman
Vá hvað þetta er flott kaka! Pant frá ykkur til að baka fyrir mig í ágúst...bætir bara ...eemmm....2 fyrir framan :)
Til hamingju aftur með stelpuna!
kv,
Hildur
Skrifa ummæli