miðvikudagur, 3. desember 2008


Stórfréttir frá Barnard Castle! Helgi fór í klippingu í fyrsta sinn síðan við fluttum til Englands! Þó ég sé kannski ekki alveg hlutlaus verð ég að segja að hann er ansi sætur svona nýklipptur. Í öðrum fréttum er það helst að önnur tönn Iðunnar í efri góm er komin í gegn. Hún ætlar aldeilis ekki að vera á eftir áætlun í tanntökunni þegar afmælisdagurinn gengur í garð.

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég er heldur ekki alveg hlutlaus og mér finnst hann líka mjög sætur.
Reyndar sýnir myndin ekki mjög vel hárgreiðsluna. Hún sést eiginlega ekki neitt.
fk mamman

Nafnlaus sagði...

Já, við viljum fá betri mynd af nýju klippingunni, svo við getum dáðst betur að piltinum. Annars var tengdasonurinn ljómandi myndarlegur líka með lubbann. Nýju tennurnar hennar Iðunnar njóta sín vel á hvolfi. Langar líka til að fá að sjá myndir af nýja gólfinu í allri sinni dýrð.
Tengdó

Nafnlaus sagði...

...er áætlun?

kv,
Hildur