Hér ber að líta Iðunni Helgadóttur með fyrsta meistaraverkið, þ.e. fyrstu teikninguna sína sem hún kom með heim úr leikskólanum í dag, ansi roggin. Þetta er abstraktverk, tveir punktar og tvö strik, og verður eflaust selt dýrum dómum eftir 100 ár. Þangað til ætlar mamma að geyma það á góðum stað.
Það er samt týpískt fyrir pennaóðu dömuna okkar að hún vildi alls ekki tjá sig með vax- eða trélitum sem henni voru boðnir, en beið þess í stað þar til henni gafst færi á bírópenna sem einhver var að nota til að fylla út eyðublöð, greip hann fastataki og teiknaði þetta fína listaverk með honum.
1 ummæli:
Þetta er náttúrulega tær snilld bara ekkert annað. Sálfræðingar og listfræðingar framtíðarinnar munu lesa út úr þessu eitthvað stórkostlegt. Kannski ekki Óla prik en næstum því.
fk amman
Skrifa ummæli