
Svona var umhorfs í Barnard Castle þegar við vöknuðum í morgun. Hvítt yfir öllu og um 10cm jafnfallinn snjór á götunum. Afskaplega fallegt, en ekki sniðugt þegar maður þarf að keyra 40 km á sveitavegum í vinnuna, ekki er búið að moka vegina, allir eru á sumardekkjum og Englendingar kunna engan vegin að aka í snjó. Þar sem ég varð að mæta í vinnu í dag ákváðum við að líklegast væri best að Helgi kæmi með okkur mæðgunum og að við mundum keyra til Darlington og taka lest þaðan, þannig sleppur maður við bröttustu brekkurnar og verstu sveitavegina. Við komumst hæglega til Darlington, tókum því bara rólega og lulluðumst þetta á svona 45km/klst. En þegar við vorum rétt að koma að Darlington lentum við í þvílíkri bílalest að eftir heilan klukkutíma í henni höfðum við ekki komist áfram nema um ca. 1km. Þá ákváðum við bara að leggja bílnum, ganga hálftíma leið á lestarstöðina og náðum þar lest, og komumst loks með barnið á leikskólann og þaðan í vinnuna eftir 3klst og 20 mín ferðalag. Úff! Iðunni fannst þetta samt bara voða gaman, enda er hún hrifin af lestum eins og pabbi sinn, og svaf af sér mest alla bílferðina. Ferðin heim gekk öllu betur, enda mestur snjórinn af götunum þá - vorum ekki nema 1 1/2 tíma á leiðinni.

Það var nú samt aldeilis þess virði að fara í vinnu því þar beið okkar pakki frá ömmu FK, með smá glaðningi handa afmælisstelpu næstu viku og aðrar gjafir sem fara eiga á heitari slóðir með helgargestinum okkar. Takk takk amma Fanney! Við pössuðum okkur líka að geyma frímerkin handa afa Gunna :-)
Hér að neðan er svo mynd til að sýna ömmunum nýju klippinguna hans Helga Péturs, svo þær geti dáðst að myndarleika (tengda)sonarins.

Að lokum er svo hér ein bjartsýnis auglýsing. Ef einhver býr svo vel að eiga bílstól sem hentað gæti dömu um 9,5kg og sem ekki er í notkun 18.des-18.jan erum við mjööög áhugasöm um að fá einn slíkan lánaðan. Iðunn er á þeim aldri að hún passar enn bæði í 0 og 1 flokks stóla.
5 ummæli:
Ég öfunda ykkur pínu af snjónum, en ekki ferðalaginu.Snjórinn léttir talsvert á skammdegismyrkrinu. Strákurinn er þrusuflottur og þarf greinilega ekki að fara aftur í klippingu fyrr en í sumar.Þessi amma bíður með afmælisgjöfina þangað til afmælisbarnið kemur heim.
Amman í turninum
Hæ hæ, hér er til Graco Logico stóll með base-i, sem ekki er verið að nota. Ykkur er meira en velkomið að fá hann lánaðan í jólafríinu :)
Hann á að henta fyrir börn að 13kg eða 81 cm.
Endilega vertu bara í sambandi ef þú vilt stólinn.
Knús á litlu kerlu.
Gríma og Úlfur Kári
Gott að pakkinn er kominn. Iðunn má fá pakkann sinn strax. Það veitir örugglega ekki af rauðum ullarsokkum í snjónum í Bretlandi.
amman FK
Bannað að segja frá hvað er í pakkanum. Iðunn gæti verið að lesa bloggið hjá foreldrum sínum, í það minnsta spyr hún spurninga á besserwiss.com.
kv örvar
Ég vil endilega að allur heimur viti það að Iðunn er á góðri leið með að verða rauðsokka.
ammman fk
Skrifa ummæli