Í dag er akkúrat ár síðan við litum stelpuna okkar í fyrsta sinn. Iðunn, stuttungurinn okkar, sem var löngu búin að fá nafnið sitt, og sem hefur staðið svo vel undir þessu fína nafni síðasta árið. Stelpan okkar sem hefur auðgað líf okkar og annarra á ómælanlegan hátt, og sem er yndislegur gleðigjafi - alltaf glöð, alltaf kát. Hér má líta örfáar af minningunum um besta árið í lífi okkar Helga.
9 ummæli:
Þetta er alveg yndislegt. TIL HAMINGJU með afmælið elsku Iðunn mín. Þetta hefur aldeilis verið viðburðaríkt og skemmtilegt ár hjá fjölskyldunni. Hlakka til að sjá þig eftir nokkra daga á Íslandi.
Amma fk
Til hamingju með afmælið elsku frænka! Hlakka til að fá þig til landsins :)
kv,
Hildur
Til hamingju með daginn!
Kveðja
Anna Lilja og co
Til hamingju elsku Iðunn okkar með fyrsta afmælið :D Hlökkum til að knúsa þig !
Kveðja
Fríða, Gunnar Geir, Kristinn Örn og María Dís
Til hamingju með fyrsta afmælið þitt Iðunn litla!
Kveðja Eygló frænka "eldri" og fjölsk.
Hamingjuóskir með daginn frá Braga afmælisbróður og restinni af Þúfubarðsfjölskyldunni!!
Til hamingju med afmaelid elsku Idunn okkar, sjaumst mjog bradlega! Amma og Dilja i New York :)
Amman verður klökk af hamingju við að horfa á þessa myndasyrpu af fyrsta ári litlu glöðu stelpunnar.Nú eru bara 4 dagar þangað ég fæ að knúsa hana aftur. Amman í turninum, nýkomin frá New York búin að endurheimta Diljá sína.Gaman núna.
Þetta er vinsæll afmælisdagur. Amma mín átti afmæli þennan dag og svo tók ég eftir að heilir 4 Facebook vinir mínir áttu afmæli þennan dag. Þetta er góður dagur að eiga afmæli á. Svo ekki verra að hann markar komu jólasveinanna.
Skrifa ummæli