laugardagur, 6. desember 2008

Góður gestur


Í dag var aldeilis skemmtilegur dagur. Von var á Eszter frá Indlandi, sem hvatti okkur til að ganga frá öllum bókunum og öllu hinu draslinu svo eftir svoldið stressaðan morgun er orðið ansi fínt hjá okkur. Svo sóttum við Eszter og nutum dagsins með henni, sem var náttúrulega yndislegt, enda ansi langt síðan við sáum hana síðast. Eszter kom færandi hendi, með risaeðlu handa Iðunni sem gerði mikla lukku, og rúmteppi handa okkur sem tekur sig stórvel út inni í svefnherbergi. Um kvöldið skruppum við niður í bæ í leit að jólasöng sem þar átti að fara fram. Fundum reyndar aldrei neitt söngfólk, en þess í stað brjálaðan eldgleypi sem stóð ber að ofan við listir sínar þrátt fyrir kulda og trekk. Við vorum öll í lopapeysum og þótti alveg nógu kalt! Iðunn sofnaði í bakpokanum á leiðinni heim og reyndist engin leið að vekja hana í kvöldmatinn svo hún sefur nú alklædd inni í rúminu sínu - bara í innifötunum samt!
Skemmtilegur dagur og eflaust verður morgundagurinn enn betri.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ji, hvað gólfin ykkar eru fín, og allt svo fínt. Klippingin hans Helga, sokkarnir hennar Iðunnar og svo sæta fjölskyldumyndin ykkar.

varð nú hreinlega að kvitta fyrir mig núna þar sem ég næ að vera fyrst :)
Kveðjur frá Önnu Lilju og co

Nafnlaus sagði...

Þú hefðir nú átt að drífa þig úr að ofan Una, svona til að venjast kuldanum í Nauthólsvíkinni.

kv Örvar

Una sagði...

Ég ætla reyndar ekki í Nauthólsvíkina ber að ofan....

Nafnlaus sagði...

Mikið rosalega eru gólfin flott hjá ykkur og allt vel til tekið! Til hamingju með það. Ég sé núna að fröken Iðunn lærir varla að ganga í þessum rauðu sokkum á sleipu gólfi en hún gæti æft sig og orðið skautadrottning.
Amma fk

Nafnlaus sagði...

Allt flott of fínt og góður gestur í heimsókn. Gaman núna!Ennþá meira gaman eftir 11 daga, þegar Iðunn fær aftur að knúsa ömmurnar sínar. Flottir rauðir sokkar!Þessi amma er að gera jólahreingerningu í eldhúsinu áður en haldið er til New York á morgun að sækja týndu dótturina.Ræð mér ekki fyrir tilhlökkun að hitta hana aftur.
Amma gulrótarbóndi.