mánudagur, 1. desember 2008

Hrakfarir á fullveldisdaginn


1.desember 2008. 90 ára afmæli fullveldis Íslands.

Loksins, loksins er gólflögninni að ljúka - Philip smiður ætlar að klára á morgun svo við getum komið heimilinu í samt lag áður en Eszter kemur til okkar um helgina.
Annars er ástandið ekki alveg nógu gott. Við fórum með köttinn til dýralæknis til að hlúa að sárum hans. Læknirinn fann gríðarstóran absess á lendinni svo kisa er ansi óánægð núna eftir sprautu í hnakkadrambið og komin með fáránlegan kraga sem hún rekur í allt. Að launum kúkaði hún í mitt rúmið okkar á meðan við vorum í Durham - blautum, ógeðslegum kúk. Að auki mótmæli hinn kötturinn útgöngubanni, sem gekk jafnt yfir báða kettina á heimilinu eftir doktorsvísitið, með að skíta á eldhúsgólfið, og Helgi steig svo ofan í herlegheitin. Á meðan við vorum að reyna að þrífa allan þennan ófögnuð sló Iðunn til og losaði sig við þarmainnihaldið sitt líka, reyndar í bleyjuna, svo það þurfti að þrífa hana, eitt skópar, eldhúsgólf, sængurföt, rúmdýnu, osfrv allt á sömu 5-10 mínútunum. Ég hef upplifað skemmtilegri kvöldstundir.
Ég er enn óökufær, en einkabílstjórarnir mínir tveir (lítill aftursætisbílstjóri og annar stærri sem nær niður á bensíngjöfina) komu mér í vinnuna, og öxlin er hægt og sígandi að skríða saman. Þrátt fyrir allar hrakfarir síðustu daga verður að segjast að við erum bara ansi kát og bjartsýn hér í Victoria Road, og erum farin að hlakka til að koma heim um jólin og hitta alla vini og kunningja.
Desemberkveðja úr snjónum í Barnard Castle.

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Þvílíkt og annað eins! Pollýanna má hafa sig alla við til að halda í bjartsýnina á svona dögum. Reyndar þarf ekki annað en horfa á kisu með þennan fáránlega kraga til að fá nett hláturskast. Hlakka til að sjá myndir af herlegheitunum, þegar gólfið er tilbúið.
Fullveldiskveðjur frá ömmunni í turninum.

Nafnlaus sagði...

Einhvern tíma hefði þetta verið talinn fyrirboði um mikla peninga, Pollýanna mín. En líklega er þetta bara "shit".
Vona að heimilið verði bráðum eðlilegt aftur.
FK