fimmtudagur, 12. júní 2008

Afmælið hans afa Gunna er í dag!


Í dag á hann afi Gunni ofurskáti og frímerkjasafnari afmæli. Við óskum honum innilega til hamingju með daginn og vildum að við værum á Íslandi svo við gætum kíkt í heimsókn og etv platað ömmu Fanneyju til að baka góðu pönnukökurnar sínar í tilefni dagsins. Til hamingju með afmælið elsku afi, Iðunn sendir þér blauta kossa og knús frá Englandi og við hlökkum öll til að sjá þig í ágúst.

þriðjudagur, 10. júní 2008

My daughter is a Neanderthal specialist!


Dóttirin kynntist Homo habilis um daginn, en nú var loks komin röðin að Neanderdalsmanninum, Homo neanderthalensis. Hér að ofan má sjá Iðunni grandskoða afsteypu af unglingnum frá Le Moustier og virðist hún nokkuð ánægð með kauða. Gloggir lesendur kannast e.t.v. líka við bolinn sem barnið er í: á hann er ritað "My mother is a Neanderthal" og verður að segjast að hann vakti afskaplega mikla kátínu í vinnunni minni í dag.... Þennan fína bol gáfu yndislegu systkyni mín og makar okkur Helga í brúðkaupsgjöf..... Helgi á annan sem á stendur "My wife is a Neanderthal", og finnst mér hann nota hann helst til oft.
Dagurinn í dag varð ansi langur, fundarseta fyrir okkur Iðunni fram að hádegi (hún fékk reyndar að dveljast hjá Pat og Judith samstarfskonum mínum í afskaplega góðu yfirlæti þegar hún gafst upp á fundinum), og svo yfirseta yfir einhverjum tölvutóta sem var að reyna að bjarga gögnum af vinnutölvunni minni áður en harði diskurinn gefur sig alveg. Tölvutótinn var sérlega óskemmtilegur og vildi ekki einu sinni brosa framaní Iðunni; við ályktuðum að hann hefði líklega farið í það sem ég vil kalla "Personality Bypass Operation" (heilinn í mér er of þreyttur til að finna íslenska þýðingu á því). Einu svipbrigðin sem sáust á honum þennan 3 1/2 tíma sem hann sat inni á skrifstofunni minni var þegar ég gafst endanlega upp á að bíða eftir að hann yrði búinn og dró fram brjóstið og gaf Iðunni fyrir framan hann......hann saup þvílíkar hveljur og tel ég að hann verði lengi að jafna sig eftir eftirmiðdaginn með Neanderdalsmömmunni og dóttur hennar.

Í framkvæmdafréttum er það helst að komið er nýtt garðhlið - Helgi þurfti samt ekki að smíða það, hann er í framkvæmdafríi í dag, svo Jóhannes og Örvar geta varpað öndinni léttar...í bili.

mánudagur, 9. júní 2008

Enn er sumar.....

Hér er alveg yndislegt veður - Iðunn og Helgi voru í garðinum í allan dag, og þegar ég kom heim var búið að setja nýjar hjarir á skúrhurðina og redda smið að koma á morgun að smíða nýtt garðhlið...það er eins og hingað sé fluttur stormsveipur en ekki Helgi Pétur! Gin aðstaðan er tilbúin fyrir ömmu Gobbu, og bara eftir að kaupa ginið. Verst er að spáð er versnandi veðri í vikulokin...við vonum bara að veðrið skáni aftur áður en hún fer. Reyndar hugsa ég að veðrið sé bara bónus, enda ekki nema ein meginástæða fyrir heimsókninni og sú sést brosa sínu breiðasta hér að ofan.
Nóg í bili....

sunnudagur, 8. júní 2008

Framkvæmdagleði - annar hluti!


Áður en hafist var handa við að leggja parkettið var annað sem meira lá á á framkvæmdalistanum: að útbúa Gin og Tonic aðstöðu fyrir ömmu Gobbu í sumarkjólnum! Því fórum við í dag og keyptum úrvals hellur og lögðum þessa líka fínu G&T stétt undir garðbekkinn svo amma þurfi ekki að vaða forinn í kjólnum fína til að njóta veiga í sólinni. Helgi stóð sig að venju eins og hetja, og stéttin var tilbúin eftir einungis 4 1/2 tíma vinnu (yfirstandandi knattspyrnuhátíð Austurríkismanna er dugleg að drífa menn áfram við svona verk - allt varð að vera klárt áður en boltinn byrjaði!), sem boðar gott fyrir parkettvinnuna. Þess ber að geta að það er ekki húsfreyja sem pínir hann í alla þessa þrælavinnu - hann er bara með ákveðna hugmynd um hvernig hann vilji hafa hlutina, og er duglegur að drífa sig af stað og koma þeim í verk. Svo fær hann endalaust knús og kossa og bjór að launum....

laugardagur, 7. júní 2008

Framkvæmdagleði í Victoria Road

Hér að ofan ber að líta helminginn af gólfefninu sem búið er að kaupa á borðstofu og stofu 11 Victoria Road. Gegnheilt eikarparkett - við erum svo flott á því hér á bæ. Iðunn er þarna með til viðmiðunar svo allir geti gert sér grein fyrir hvað þetta er svakalega mikið parkett sem Helgi á eftir að púsla, negla og líma. Við komum svo með "update" seinna svo fólk geti fylgst með framgangi framkvæmdanna.
Einnig má sjá á þessari mynd, og eins hinni hér að neðan að höfuð heimilisins lét sér ekki Marks og Spencer nærbuxurnar nægja og hefur nú fjárfest í ekta tweed sixpensara að hætti heimamanna - When in Rome......

Baðiðunn


Baðferðir eru vinsælar hér á Victoria Road, og ekki spillir fyrir hve nýja baðherbergið er fallegt og fínt - uppáhaldsherbergið okkar í húsinu! Öndin er ekki alveg jafn sæl með hlutskipti sitt, hún hlaut að lokum sömu örlog og Homo habilis hérna um daginn.

Feðgin á ferð


Í gær var langur dagur hjá mér í vinnunni svo Helgi og Iðunn notuðu tækifærið og skelltu sér í skemmtiferð til Newcastle tvö ein. Það var víst mikið fjör, þó litla pían hafi ekki fengist til að borða mikið yfir daginn því allt annað var meira spennandi. Þau gerðu sitt lítið af hverju, versluðu sólgleraugu á bóndann (Diljá systir er ekki viss um að þau séu skárri en þau gulu, en þau eru þó a.m.k. ekki gul, og Helgi er rosa ánægður með þau, sem skiptir mestu máli), skoðuðu Gray Street og fóru á listasafn. Ég var ansi öfundsjúk að fá ekki að vera með. Þau komu svo með lestinni til Durham og hittu mig í vinnunni áður en Helgi fór í fótboltann. Helga finnst fornleifafræðingarnir helst til áhugasamir í boltanum - spila allt að 2 tíma í einu, sem reynir svoldið á, bæði hreysti hans og þolinmæði Iðunnar sem er iðulega orðin ansi þreytt þegar sparkið er búið. Við Iðunn notuðum samt tímann í gær í góðan göngutúr meðfram ánni Wear og Helgi stóð sig eins og hetja í boltanum eins og alltaf. Talandi um bolta þá skilst mér að fátt annað verði í sjónvarpinu, eða á dagskránni hér næstu vikur.....Helgi er í sjöunda himni!

fimmtudagur, 5. júní 2008

Sólin komin!

Loksins, loksins lét sólin sjá sig! Við urðum náttúrulega að skrúfa fyrir rigninguna fyrst turnamman er búin að kaupa sér sumarkjól (sjá komment við síðust færslu) sérstaklega fyrir heimsóknina hingað í Barnarðskastala. Nú vonum við bara að góða veðrið haldi sér fram yfir komu hennar í lok næstu viku.
Þau Iðunn og Helgi höfðu það voða notalegt í gær, fóru í göngutúr í góða veðrinu og þegar ég kom heim úr vinnunni sátu þau í garðinum og nutu sólarinnar. Ég dreif þau reyndar með mér í annan göngutúr, sem hefur líklega reynt full mikið á þau, því bæði sofnuðu uppúr sjö í gærkveldi og rumskuðu ekki fyrr en 12 tímum síðar! Hugsa ég að vinir og vandamenn Helga þekki þarna sinn mann!
Annars eru þær gleðifréttir mestar að ég sé fram á að ljúka prófyfirferð í dag, og verð þá búin að lesa u.þ.b. 1000 handskrifaðar ritgerðir síðan ég byrjaði á fyrsta staflanum. Hallelúja fyrir því!
Sumarkveðjur úr morgunsólinni.

miðvikudagur, 4. júní 2008

Rigningardagar

Hér hefur verið ansi blautt og svalt, og Iðunn er komin aftur í 66N gallann hans Dags frænda. Ætli þetta sé ekki vegna þess að við erum loksins búin að setja bekkinn í garðinn og aðstaða til útiveru því orðin mun betri en þegar við komum...þetta er svona eins og ef maður fer með regnfötin með sér í sumarfrí, þá skín sólin alla daga.
Í gær var hellidemba eiginlega allan daginn en Helgi og Iðunn létu það nú ekki á sig fá og fóru í langan göngutúr um Fletts Wood, og komu svo aftur alveg gegndrepa. Á meðan fór ég enn og aftur yfir próf og stóð þess á milli í eldhúsinu við að gufusjóða epli og gulrætur, þó hvorugt hlyti reyndar náð fyrir augum dótturinnar...... Hún bara skyrpti því öllu út úr sér hvort sem það var grautblandað eða ekki. En eins og hjá öllum öðrum harðstjórum verður það bara borið á borð aftur og aftur (ekki sami skammturinn samt) þar til hún sér að ekki þýði annað en að láta sig hafa það að borða þennan "ófögnuð".
En nú er kominn miðvikudagur og sól skín í heiði...kannski gulrætur bragðist betur í sólskini.

sunnudagur, 1. júní 2008

Sjómannadagur í Jórvík



Í gær fórum við öll til York að heimsækja Paul O´Higgins og fjölskyldu og borða með þeim sunnudagslamb. Paul var annar leiðbeinandinn að doktorsritgerðinni minni og hann og Louise konan hans eru góðir vinir mínir, og nú einnig Helga og Iðunnar. Paul og Louise eiga tvær dætur, Isabellu (Izzy) og Madalenu (Maddí) og þær voru bestu barnfóstrur sem hægt er að hugsa sér - þær útbjuggu hreiður handa Iðunni fyrst í stofunni og svo í eldhúsinu, báru í hana endalausan straum af leikföngum og voru með alls kyns skemmtiatriði fyrir hana í marga klukkutíma. Ég hef sjaldan séð jafn unga krakka sýna svo mikla þolinmæði. Iðunni þótti þær náttúrulega lang skemmtilegastar, og var sallaróleg og ánægð með lífið þó foreldrarnir væru úr augnsýn langtímum saman. Foreldrarnir voru einnig ánægðir að fá að ræða rannsóknir, stærðfræði, forritun og annað óskylt barnauppeldi. Sem sagt, yndislegur dagur og allir ánægðir með lífið.