mánudagur, 9. júní 2008

Enn er sumar.....

Hér er alveg yndislegt veður - Iðunn og Helgi voru í garðinum í allan dag, og þegar ég kom heim var búið að setja nýjar hjarir á skúrhurðina og redda smið að koma á morgun að smíða nýtt garðhlið...það er eins og hingað sé fluttur stormsveipur en ekki Helgi Pétur! Gin aðstaðan er tilbúin fyrir ömmu Gobbu, og bara eftir að kaupa ginið. Verst er að spáð er versnandi veðri í vikulokin...við vonum bara að veðrið skáni aftur áður en hún fer. Reyndar hugsa ég að veðrið sé bara bónus, enda ekki nema ein meginástæða fyrir heimsókninni og sú sést brosa sínu breiðasta hér að ofan.
Nóg í bili....

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Ég sé ekki annað en að þetta sé snilldaraðstaða til gindrykkju. Bleikir púðar mundu reyndar gera útslagið. Ég panta rauðvín þegar ég kem í heimsókn.

Nafnlaus sagði...

Hugtakið "gleðin uppmáluð" öðlast líf, þegar maður horfir á þessar myndir af Iðunni að fagna mömmu sinni. Vona að hún verði jafn glöð að sjá ömmuna sína.Það er víst spáð blíðviðri hér strax og ég er farin svo ég verð sennilega að sitja undir regnhlíf á fína bekknum með mitt G og T. Hvað leggur maður ekki á sig.